Ný saga - 01.01.1989, Side 42

Ný saga - 01.01.1989, Side 42
Már Jónsson Sárafáar konur voru það harðsnúnar að þær neituðu að nefna nöfn. Forsíða á ritlingi sem Guðbrandur Þorláks- son gaf út á Hólum árið 1596: „Um Eiða og Meinsæri, hvað hræðileg Synd það sé fyrir Guði ranga Eiða að sverja. “ Þremur fingrum hægri handar átti að lyfta til himins eða leggja á Biblíuna. Þumalfingur merkti Guð föður, vísifingur Guð son og langatöng Guð heilagan anda. Hina fingurna átti að beygja inn í lófann. Baugfingur merkti sál mannsins en litlifingur líkamann, sem var minna virði en sálin. sem ég satt segi, gramur ef ég lýg.“ Væri kvæntur maður lýstur faðir var honum yfirleitt dæmd- ur sjöttareiður. Þá nefndi sýslu- maður sex nefndarvætti og urðu þrjú þeirra að sverja með honum, auk tveggja fangavotta. Þannig lýsti Guðríður Ingi- mundardóttir Pál Halldórsson föður að barni sínu Sigurði sem fæddist á jólum 1633- Hann harðneitaði bæði barni og „holds samblandi" með Guð- ríði síðan hann gekk að eiga konu sína Oddnýju. Á þingi að Svínavatni í september 1634 var Páli gert að vinna sjöttareið inn- an f)órtán nátta og nefndi sýslu- maður honum sönnunarmenn á þinginu, „so sem ber.“ Eins átti Sigurður Magnússon að sverja sjöttareið íýrir barn Helgu Halldórsdóttur árið 1693 „svo framt Sigurður liafi verið eigingiftur um barnsins getnað- artíma," en lýrittareið minni að öðrum kosti.35 SAMFARATÍMI OG SÖNNUNAREIÐAR KVENNA Það var ekki ófrávíkjanleg regla að karlar sem neituðu fað- erni fengju að sverja fyrir börn sem þeim voru kennd. Konan og hinn lýsti faðir voru bæði yfirheyrð og hann fékk ekki eið nema hann hefði eitthvað til síns máls. Dómsmenn að Holti undir Eyjafjöllum vorið 1604 áttu til að mynda í vandræðum með að gera upp hug sinn í deilu Sigríðar Gísladóttur og Björns Erlendssonar: „En aug- ljóst er annað hvort segir ósatt... En oss þótti stór vandi að dæma í þvílíkum ágreiningum eið er hvorir tveggja eru jafnlíkir til sanninda." Ekki var dæmt í mál- inu að sinni, en niðurstaðan var sú að ári síðar vann Björn þann eið „að ég lief ekkert lík- amlegt sambland haft við Sig- ríði Gísladóttur síðan í fýrra vet- ur fyrir Pálsmessu.“ Með þeim eiði var Björn laus við barnið vegna þess að sá tími sem hann viðurkenndi að hafa haft sam- ræði við Sigríði kom ekki heim og saman við fæðinguna.36 Hvorki sýslumaður né dóms- menn töldu Gísla Pálssyni hins vegar þann eið særan sem hann bauð fyrir barn Ingibjargar Jónsdóttur. Hún fullyrti að barnið hefði komið undir á föstudegi þegar sex vikur voru af vetri árið 1674. Hann vildi engu svara á þingi að Gaulverja- bæ 16. júní 1675 og var gert að tilgreina þá viku sem hann „til minnist samfarir Ingibjargar og hans orðið hafi, hvað vér vor- kennum honum ekki að gjöra og sé búinn að auglýsa tímann sýslumanninum fyrir Jóns- messu so sannleikur um barns- faðerni finnast rnætti." Gísli hlýddi strax og játaði samræði með Ingibjörgu „í vikunni fyrir Þrettánda, sem byrjaðist 11. janúar 1674... og þaðan frá aldr- ei á þeim vetri framundir tveggja postula messu." Út- reikningur leiddi í ljós að „sá tími sem yfir hefur eðlilegan barnburðartíma séu nærri sex vikur.“ Eiðstilboð Gísla var ekki tekið til greina og mánuði síðar lofaði hann að taka við barninu „so sem faðir.“37 Hér gátu hugmyndir um meðgöngutíma skipt sköpum. Á prestastefnu að Flugumýri 10. júní 1696 var rætt um „almenni- legan níu mánaða barnsfæðing- ar tíma“ og í dómasafni frá lok- urn 17. aldar er þessi setning: „Almennilegur barnburðartími 40 kvenna 39 vikur 1 dagur eður 9 mánuðir 3 vikur 1 dagur.“38 Neðri mörkin eru 274 dagar og efri mörkin 292 dagar. í dóm- um um faðerni var oftast miðað við slík mörk og allmargir karl- ar sem játuðu samfarir með móðurinni en neituðu að gang- ast undir faðerni barnsins fengu eið og sluppu með skrekkinn. Menn vissu þó vel að níu mán- aða meðgöngutími var ekkert náttúrulögmál, til að mynda dómsmenn að Engihlíð í nóv- ember 1623- Þeir miðuðu dóm sinn að vísu við níu mánuði, en sýndu þá varkárni að láta Árna Teitsson sverja fyrir samfarir við Gyðu Halldórsdóttur „í tvo mánuði fyrir hennar getnaðar- tíma og ekki heldur á barngetn- aðartímanum og ekki tvo mán- uði þar eftir er hún tók við sínu barni.“ Eins ályktuðu prestar á Þingvöllum sumarið 1710 „að jafnvel þótt ekki kunni menn neitt víst að segja um svo heimuglegan náttúrunnar hlut, þá samt eftir því að vér sjáum af lærðra manna bókum að sjö mánaða fóstur kunni lifandi í ljós að koma höldum vér að átta mánaða fóstur kunni og lifandi að fæðast."39 Skeleggastar skoð- anir hafði þó Brynjólfur biskup Sveinsson. Á alþingi 1651 lét hann lesa upp bréf um meðgöngutíma og tiíefnið var að honum þótti að svo væri komið að „sérhverjum vanvitr- ingi og óbljúgum dára“ liðist að sverja af sér börn „íýrir lítils tíma sakir, hvern þeir sjálfir til- taka.“ Með því að taka saman og rekja álit fróðra manna á borð við Hippókrates og Aristóteles sýndi hann að „kvenburðartím- inn“ væri ekki „kvarðaður, skorðaður og niður bundinn við nokkra vissa, óbrigðanlega tímalengd, sem vér almenni- lega meinum" heldur gætu konur fætt á sjöunda, áttunda, níunda og tíunda mánuði frá getnaði. Biskup hvatti veraldleg yfirvöld því til að fara varlega með að leyfa þeim mönnum eiða „sem börnin vilja af sér sverja, en ekki verkið, þar sem
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Ný saga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.