Ný saga - 01.01.1989, Page 77

Ný saga - 01.01.1989, Page 77
„ÞJÓÐFÉLÖG SEM EKKIHIRÐA UM SÖGU SÍNA ERU MINNISLAUS OG BLIND“ Már Jónsson ræðir við firanska sagnfræðinginn Jacques Le Goff Franski sagnfræðingurinn Jacques Le Goff kom hingað til lands í fyrra- haust. Hann hélt fyrirlestur við Háskóla íslands 13- október og nefndi hann Er hœgt að tala um miðaldamann? Daginn eft- ir var haldið málþing þar sem hann reifaði rannsóknir sínar á sögu miðalda í Evrópu. Annars varði hann tíma sínum hérlend- is til að ferðast um landið, en gaf sér tíma árla dags, áður en hann hélt á vit Bárðar Snæfells- áss, til að veita Nýrri sögu viðtal. Le Goff fæddist í borginni To- ulon í Suður-Frakklandi á ný- ársdag 1924. Hann var virkur í andspyrnuhreyfingunni gegn Þjóðverjum á árum síðari heimsstyrjaldar, en lærði síðan í École normale og Sorbonne í París. Að námi loknu var hann eitt ár í Prag og annað í Oxford, kenndi í menntaskóla og fékk stöðu við háskólann í Lille. Þar skrifaði hann fyrstu bækur sínar, Marchands et banquiers au Moyen áge, París 1956, og Les Intellectuels au Moyen áge, París 1957 (ný út- gáfa 1985). Árið 1958 veitti Fernand Braudel honum stöðu við sjöttu deild École pratique des Hautes Études í París, og þar hefur Le Goff kennt og kannað síðan. Sex árum síðar gaf hann út bókina La Civilisa- tion de l’Occident médiéval, sem telst til sígildra verka í franskri sagnfræði og var gefin út endurskoðuð 1984. Árið 1972 tók Le Goff við forsæti deildarinnar af Braudel og kom því í kring að henni var breytt í sérstakan skóla, École des Haut- es Études en Sciences Sociales. Le Goff hefúr skrifað býsn af bókum og greinum, mest um miðaldir, en einnig töluvert um aðferðafræði, enda er hann einn af frumkvöðlum hinnar nýju sagnfræði, „la nouvelle histoire," sem varð til og mótaðist í Frakklandi á áttunda áratug aldarinnar. Allmargar greinar hans hafa verið teknar saman og gefnar út undir bók- arlieitunum Pour un autre Moyen áge, París 1977, og L’Imaginaire médiéval, París 1985. Mesta afrek hans und'an- farin ár er tvímælalaust bók um uppruna hreinsunareldsins á síðari hluta 12. aldar, Naissance du purgatoire, París 1981. Fyrir þremur árum gaf hann loks út litla bók um okur á miðöldum, Im bourse et la vie. Économie et réligion au Moyen áge. Og ef marka má viðtalið sem hér fer á eftir er óhætt að gera ráð fyrir fjölda bóka frá honum næstu árin. ALMENNINGUR OG EVRÓPA En hvað er Jacques Le Goff helst að fást við? Ég er ákaflega upptekinn af þvi að gera söguna aðgengilega fyrir almenning, og hef reyndar verið það lengi. Markmiðið er þá að tengja rannsóknir, kennslu og það að skrifa og tala fyrir almenning. Hið síðast- nefnda er mikilvægt og þá á ég við alvarlegar, vandaðar og vís- indalegar tilraunir til að miðla sagnfræði til almennings. Slíkt efni þarf alls ekki að vera leiðin- legt. Ég hef annast útvarpsþátt á menningarstöð franska útvarps- ins í tvo áratugi, Les lundis de l'histoire, og horfur eru á því að þátturinn verði lengi á dagskrá. í upphafi var ég einn með þáttinn, en nú erum við fleiri. Þættirnir eru byggðir þannig upp að rætt er urn nýútkomna bók um sagnfræði. Oft er höf- undur fenginn í viðtal og sér- fræðingar á sama sviði vega og rneta bókina í beinni útsend- ingu. Þetta er skemmtilegt og gefandi starf. Ég hef líka tekið þátt í undirbúningi sjónvarps- þátta um söguleg efni og var til dærnis sögulegur ráðunautur leikstjórans Jean-Jacques Ann- aud þegar hann kvikmyndaði Nafn rósarinnar eftir Umberto Eco. Svo er annað sem ég er upp- tekinn af, utan við rannsóknir og kennslu, en það er aukið samstarf Evrópuríkja, í þeim skilningi að æskilegt og eðlilegt væri að gera meira af því að skrifa raunverulega Evrópu- sögu, ekki aðeins sögu ein- stakra ríkja. Það er ekki hægt eins og er, en verið er að vinna að því í nokkrunt starfshópum og ég tek þátt í því starfi af lífi og sál. Hvað sjálfa sagnfræðina varð- ar velti ég því talsvert fyrir mér hvers vegna sagnfræðingar hugsa ekki meira um fræði- greinina sem slíka, eðli hennar og möguleika. Það er löstur. Flestir sagnfræðingar stunda sagnfræði án þess að hugsa um það sem þeir eru að gera. Sjálf- ur er ég ekki mikill kennninga- smiður og mér leiðist söguspeki. Hins vegar er ég sannfærður um að aðferðafræði er grund- vallaratriði og ég hugsa um hana án afláts þegar ég sit yfir handritum eða er að skrifa. Eins þegar ég les eða lilusta á verk annarra. NÝ STfÓRN - MÁLASAGA Og þá er komið að rannsókn- um mínum og áformum um 75
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Ný saga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.