Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1947, Side 60

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1947, Side 60
42 TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA upplagið seldist alt og varð að prenta aðra útgáfu af fyrra bind- inu, 1937, áður en hið síðara kom út 1938. En engan þarf að undra vin- sældir bókarinnar jafn-fleytifull og hún er af góðum sögum, ævin- týrum og svaðilförum hákarlafor- mannsins. Sama árið og Virkir dagar, II., kom líka út hin mikla saga hans í tveim bindum: Sturla í Vogum, ’38. í þessari stóru skáldsögu mun Hagalín hafa ætlað að sýna þjóð- félagshreyfingar þær á Vestfjörðum, er fyrst breyttu hinum forneskju- legu og einrænu útkjálkamönnum í samvinnumenn, menn sem hugs- uðu á félagslega vísu. Hagalín hafði lýst komu jafnaðarmenskunnar til Vestfjarða í Brennumönnum, 1927, en það var jafnaðarstefna Alþýðu- blaðsins frá 1916. Hér skygndist hann lengra aftur í tímann til þess, er hinir afskektu smábændur fóru fyrst að rumska og reyna að taka höndum saman gegn dönsku kaupmönnunum og gegn hinum valdamiklu stórútgerðarmönnum, er réðu lofum og lögum vestur þar í fjörðunum, — mönnum eins og Melakonginum, — mönnum eins og þeim frændum Hagalíns, sem hann lýsir í smásögunni “Frændur.” Að sumu leyti fjallar bókin því um sömu þjóðfélagshreyfingu og Leys- ing Jóns Trausta, en þar eru átökin hreinlega á milli kaupmanns og kaupfélagsins, hér eru þau fremur milli ríkisbokkanna vestfirsku og hinna fátækari bænda. En hér lá líka annar fiskur undir steini. “Hún er ekki bara sveita- og útnesjasaga,” skrifaði Hagalín um bókina 14. ágúst 1937. “Hún tekur til meðferðar mál í ljósi þeirrar reynslu og þeirra athugana, sem ég hefi fengið og gert hér á seinni ár- um. Hún er hornsteinn að því, sem koma skal. Og mál hennar er al- heimsmál, hvernig sem ég kann að tala því. Hún er um það, hvernig manni verður við, þegar hann tek- ur eftir hinu mikla volduga als- herjar augliti: manneskjunni í ver- öldinni — og hvað það leiðir af sér.” Það var þetta auglit, sem Hagalín þóttist hafa séð, er hann gerðist jafn- aðarmaður, — og það er hið sama auglit, sem hann lætur Sturlu í Vog- um sjá, þegar drottinn hefir slegið hofmóð hans í duftið eftir hinn vo- veiflega dauða konu hans. Hann segir þetta alt berum orðum í Sturlu í Vogum II., 293. En samt, eins og vant er um Hagalín, er boðskapur hans fremur fólg- inn í persónunum heldur en i boðorðum höfundarins sjálfs. Jo- hannes guðsspjallamaður segir: “í upphafi var orðið”, en Hagalín mundi orða það “í upphafi var per- sónan.” Því hvenær sem Hagalin hefir eitthvað, sem hann vildi sagt hafa, og það hefir hann ósjaldan, þa lætur hann karla sína og kerlingar segja það. Eitthvert besta dæmi þessa er karlinn “Einn af postulun- um,” sem með framkomu sinni einni saman, óviljandi og óafvitandi snýr nýbökuðum, rétttrúuðum sáluhirði sínum til sinnar ódogmatisku truar á lífið. Sturla í Vogum er engin undan- tekning í þessum efnum: það eru persónurnar fyrst og fremst, sem tala því máli sem Hagalín vill boða. Hér er þá fyrstur á blaði Sturla Þórðarson sjálfur, sjálfseignarbóndi
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.