Hugur - 01.06.2009, Page 138
136
Róbert Jack
II. Villuótti?
Loks sný ég mér að Daniel Gilbert sem hefur getið sér gott orð fyrir bók sína
Stumbling on Happiness. Gilbert er sálfræðiprófessor við Harvard-háskóla og bók
hans er alþýðlegt rit sem meðal annars hlaut verðlaun sem vísindabók ársins 2007
hjá Konunglegu vísindaakademíunni í Bredandi. Meginviðfangsefni bókarinnar
er sá vandi mannsins að meta hvað muni gera hann hamingjusaman, en Gilbert
segir okkur að rannsóknir sýni minni fylgni en ætla mætti á milli væntinga til
framtíðarinnar og þess sem hún svo leiðir í ljós.
Gilbert hefur ekki mikið um sjálfshjálparrit að segja, en hann reynir þó mark-
visst að fjarlægjast þeim, e.t.v. vegna þess að bók hans gæti virst einhverjum þess
eðlis.50 Gilbert nefnir enga sjálfshjálparfræðinga eða bækur þeirra með nafni, en
hann virðist eiga við þá sem telja sig geta gefið fólki ráð um hvernig það getur
hagað lífi sínu, ólíkt honum sjálfúm sem fæst við að greina frá vísindalegum stað-
reyndum. Þá segir Gilbert hagnýtt gildi bókar sinnar skipta sig litlu, en óhætt er
að segja að sjálfshjálparrit stefni að því að gera gagn.511 ljósi þessa virðist mér bók
Gilberts heldur geta kallast alþýðlegt fræðirit, eins og bók Golemans, en hefð-
bundið sjálfshjálparrit af ætt Carnegies. En áhugavert er að skoða með hvaða hætti
Gilbert skapar fjarlægð milli sín og sjálfshjálparrita.
I viðauka Stumbling on Happiness52 er viðtal við Gilbert þar sem hann er m.a.
spurður hvort sjálfshjálparrit geti verið hjálpleg.
Já. Þau geta hjálpað höfundunum að græða peninga. Sá sem þiggur sál-
fræðiráðgjöf frá einhverjum sem ekki er þjálfaður og með réttindi til að
veita slíka ráðgjöf ætti að láta skoða á sér hausinn. Myndi nokkur kaupa
bók sem skrifuð væri af leigubílstjóra og héti Hvernigpú geturjjarlægt úr
pér botnlangannJ2
Gilbert virðist hér svara í nokkrum hálfkæringi og velta má fyrir sér hvort taka
eigi svar hans við þessari spurningu alvarlega. Gilbert er þó almennt nokkuð
gamansamur maður ef marka má bók hans, þar eru fimmaurabrandarar og hálf-
kæringur á hverju strái. Ef maður ætlar að taka hann alvarlega hlýtur því að þurfa
að hafa gamanið með. Af svarinu má þá ráða að Gilbert telji eins og Salerno að
höfundar sjálfshjálparrita hafi það helst að leiðarljósi að græða sem mesta peninga
og einnig að þeir hafi almennt ekki menntun til að veita sálfræðiráðgjöf. Ljóst er
því af svarinu að Gilbert vill ekki að bók hans sé sett í flokk með sjálfshjálparritum.
50 Aftan á Stumbling on Happiness er m.a. vitnað í Daniel Goleman þeim orðum að Daniel
Gilbert stýri okkur í átt að hamingjunni. Onnur tilvitnun þarna talar um hvernig bókin
getur breytt sýn manns á nánast alla hluti. Einhverjir virðast því skilja bók Gilberts nokkuð
sjálfshjálparlega.
51 Gilbert (2007: P.S. 5).
52 Þetta viðtal er ekki að finna í íslensku útgáfunni af bókinni.
53 Gilbert (2007: P.S. 4).