Hugur - 01.06.2009, Page 170
168
David Hume
okkar á vitni, traust okkar á sögunni og reyndar alls konar líkindarök um mannlífið
\moralevidence] og næstum því öll hegðun okkar í daglegu lífi.
Höfundur okkar heldur því fram að þessi rökfærsla setji alla deiluna í nýtt sam-
hengi með því að koma með nýja skilgreiningu á nauðsyn. Og reyndar verða
áköfustu formælendur frjáls vilja að viðurkenna þessa fylgni og ályktun hvað
mannlegar athafnir snertir. Þeir munu einungis neita að þetta sé nauðsynin öll. En
þá verða þeir að sýna fram á að við höfum hugmynd um eitthvað annað í gerning-
um efnisins, en samkvæmt rökfærslunni hér á undan er það útilokað.
I allri þessari bók er mikil kröfugerð um nýjar uppgötvanir í heimspeki, en geti
eitthvað veitt höfundinum tilkall til svo dýrlegs nafns sem þess að vera kallaður
hugvitsmaður þá er það notkun hans á lögmálinu um hugmyndatengsl sem kemur
inn í mestalla heimspeki hans. Imyndunaraflið hefur mikið vald yfir hugmyndum
okkar, og það eru engar hugmyndir ólíkar hver annarri sem það getur ekki aðskilið
og tengt saman og sett inn í allar tegundir skáldskapar. En þrátt fyrir veldi ímynd-
unaraflsins er dulið samband á milli ákveðinna hugmynda sem veldur því að hug-
urinn tengir þær oftar saman og lætur eina, þegar hún birtist, innleiða aðra. Af
þessu stafar það sem við köllum viðeigandi [apropos] í samræðu, samhengi ritaðs
máls, og sá hugsanaþráður sem maður fylgir eðlilega jafnvel í sundurlausustu
draumórum. Þessi lögmál um hugmyndatengsl eru dregin saman í þrjú,þ.e. líkingu
- mynd fær okkur eðlilega til að hugsa um manninn sem hún var teiknuð af;
samlægi - þegar St. Denis6 er neftid kemur hugmyndin um París eðHlega í hugann;
orsakatengsl - þegar við hugsum um soninn er okkur gjarnt að beina athyglinni að
föðurnum. Það verður auðvelt að hugsa sér hve geysilega þýðingu þessi lögmál
hljóta að hafa í vísindunum um mannlegt eðli ef við hugleiðum að hvað hugann
varðar eru þau einu tengsUn sem halda pörtum heimsins saman eða tengja okkur
við manneskju eða hlut utan við okkur sjálf. Því vegna þess að það er einungis með
atbeina hugsunar sem nokkuð hefur áhrif á geðshræringar okkar, og þar sem þessi
lögmál eru einu tengsl hugsana okkar, þá eru þau í raun fyrir okkur bindiefni
heimsins og allar aðgerðir hugans hljóta að miklu leyti að ráðast af þeim.
Gunnar Ragnarsson pýddi
6 Útborg Parísar. Hume starfaði um tíma sem ritari og sendifulltrúi hjá breska sendiráðinu í
París. - (Neðanmálsgreinar eru eftir þýðanda.)