Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2003, Page 24
Logi Kristjánsson, framkvæmdastjóri VFÍ,
Helgi Hallgrímsson, Helga Valfells, dóttir
Ágústar Valfells, sem tók við viðurkenningu
fyrir hönd föður síns, Bragi Þorsteinsson og
Hákon Ólafsson, formaður VF(.
(Ljósm. Sigrún S. Hafstein)
Skemmtileg árshátíð
Arshátíð VFI var að venju haldin fyrsta laugardag í
febrúar 2003 og var vel sótt og skemmtileg.
Skemmtidagskráin sem tengdist „göldrum" var hin
glæsilegasta.
Hátíðarræðuna flutti Ólína Þorvarðardóttir, skóla-
meistari á ísafirði, en veislustjóri var Inga Hersteins-
dóttir verkfræðingur. Kór Línuhönnunar söng fyrir
veislugesti og skemmtinefndin steig á svið og spil-
aði á garðslöngu, „lítið virkjað vatn" og söng.
Þrír verkfræðingar voru sæmdir heiðursmerki
félagsins, þeir Helgi Hallgrímsson vegamálastjóri,
Bragi Þorsteinsson byggingarverkfræðingur og
Agúst Valfells efnaverkfræðingur.
Útrásin
iFélagar f VF( 1998-2002.
Undanfarin ár hefur stjórn VFÍ lagt sig fram um að fá fleiri félaga
til að gerast félagar í VFÍ. Öflugt og fjölbreytt starf, stofnun nýrra
faghópa og lækkun félagsgjalda hjá þeim sem eru að koma frá
námi eru meðal þess sem gert hefur verið. Stjórnarmenn hafa haft
samband við fjölda verkfræðinga utan félagsins og orðið nokkuð
ágengt í þeim efnum. Ennfremur hefur þrjú sl. ár verið efnt til leiks
til að afla nýrra félagsmanna.
Á árinu 2002 hlaut María S. Norðdahl ferð fyrir tvo í sólarlandaferð
með leiguflugi Úrvals-Útsýnar.
Samstarf við verkfræðideild Háskóla íslands
Verkfræðingafélag íslands hefur lagt mikla áherslu á gott samstarf við verkfræðideild
Háskóla Islands, enda eru slík tengsl báðum aðilum nauðsynleg. Formaður, varafor-
maður og framkvæmdastjóri hafa átt reglulega fundi með forseta deildarinnar og skorar-
formönnum um málefni verkfræðideildar og félagsins.
Gjöf til verkfræðideildarinnar: í tilefni af 90 ára afmæli félagsins ákvað stjórn VFÍ að
gefa verkfræðideild Háskóla íslands fartölvu, skjávarpa og rafræna áskrift að CRC-hand-
bókinni á tölvutæku formi. Með gjöfinni vill félagið sýna í verki viðurkenningu á mikil-
vægi deildarinnar og styðja við menntunar- og fræðistörf innan hennar.
Meistaraverkefni kynnt: Á starfsárinu héldu Verkfræðideild og Verkfræðingafélagið
ráðstefnu þar sem verkefni MS-nema voru kynnt. Þetta var þriðja árið í röð þar sem fé-
lagið stendur að kynningu á rannsóknarstarfi Verkfræðideildar.
Vinna nemenda við félagakerfið: Verkfræðingafélagið hefur fengið nemendur á þriðja
ári við Verkfræðideild HI til að vinna að skráningu og leiðréttingum í félagakerfinu. Þessi
vinna hefur verið liður í fjáröflun vegna útskriftarferða verkfræðinema.
Árbók VFl/TFl 2002