Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2003, Page 32
Samstarf við Stéttarfélag verkfræðinga: Samstarfið við SV hefur á undanförnum árum
verið mun minna en tilefni gefur til, þótt sambúðin í Verkfræðingahúsi hafi verið með
ágætum. Vegna aukinnar húsnæðisþarfar SV réðst húsnefnd VFI í verulegar breytingar á
húsnæði á 2. hæð ásamt því að jarðhæð hússins var tekin undir fundarsal eins og
upphaflegar teikningar gerðu ráð fyrir. Þann sal leigir SV með VFÍ og TFI.
Eins og undanfarin ár hafa SV, VFÍ og TFÍ samvinnu um útgáfu Verktækni og skipun í
ENSÍM-nefndir.
Umræðan um sameiningu SV og VFI hefur legið niðri um hríð en ástæða er til að taka
upp þráðinn aftur.
Fleiri fagfélög í Verkfræðingahús: I apríl á árinu 2002 flutti Arkitektafélag Islands í
Verkfræðingahús og síðar á árinu fluttu Félag byggingarfræðinga, Félag húsgagna- og
innanhússarkitekta ásamt Félagi íslenskra landslagsarkitekta inn á aðra hæðina. Þá hefur
Félag tölvunarfræðinga haldið nokkra almenna fundi í Verkfræðingahúsi sl. tvo vetur.
Tilkoma fagfélaga í húsinu á vonandi eftir að auka samstarf félaganna og auðga félags-
starfið.
Hagsmunafélag
Hagsmunafélag um eflingu verk- og tæknimenntunar á háskólastigi á Islandi var stofnað
23. mars 2003 af VFÍ, TFI, SI, HÍ, HA og THÍ.
A undanförnum árum hefur hagsmunafélagið staðið fyrir umræðum um tæknimenntun
á háskólastigi og kynningarfundum fyrir nemendur í framhaldsskólum landsins.
Hagsmunafélagið hefur árlega veitt viðurkenningar til skóla og/eða kennara. A árinu
2002 fengu Alftamýrarskóli viðurkenningu fyrir hæstu meðaleinkunn 10. bekkjar í
stærðfræði vorið 2002 og Reykhólaskóli fyrir hæstu meðaleinkunn sl. þrjú ár.
Fyrr á árinu 2002 fékk Salaskóli viðurkenningu fyrir að hafa stofnað sérstaka vísinda-
miðstöð fyrir nemendur.
Mennt - samstarfsvettvangur atvinnulífs og skóla
Meginhlutverk Menntar er að annast söfnun og miðlun upplýsinga og stuðla að
gagnkvæmri yfirfærslu þekkingar og færni. Mennt sér um framkvæmd á verkefnum er
tengjast menntun og fræðslu og er virkur vettvangur samræðna og samstarfs aðila vinnu-
markaðarins, skóla og stefnumótunaraðila til þróunar menntunar fyrir atvinnulífið.
Samtökin voru stofnuð 1998 og voru TFÍ og VFÍ meðal stofnaðila. Fulltrúi VFÍ hjá Mennt
er Sigurður M. Garðarsson og fulltúi TFÍ Oskar Þorsteinsson.
Mennt veitir árlega starfsmenntaverðlaun í samvinnu við Starfsmenntaráð. Verðlaunin
fyrir 2002 voru veitt af forseta íslands, hr. Ólafi Ragnari Grímssyni. Verðlaun voru veitt í
þremur flokkum: í flokki fyrirtækja hlaut þau Útgerðarfélag Akureyringa hf. í flokki
fræðsluaðila var verðlaunahafi Menningar- og fræðslusamband alþýðu og í opnum
flokki var það idan.is.
Aðalfundur samtakanna var haldinn 22. nóvember 2002 og var þar m.a. skipuð ný stjórn.
Átta manns skipa stjórn Menntar, tveir tilnefndir af ASÍ, tveir af Samtökum atvinnulífs-
ins, tveir af Iðnmennt, einn af Samstarfsnefnd háskólastigsins og einn af Samstarfsnefnd
um menntun í iðnaði. Núverandi formaður er Alda Sigurðardóttir.
Vefsíða Menntar er www.mennt.net. Þar má finna frekari upplýsingar um samtökin.
2 8 | A r b ó k VFf/TFl 2002