Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2003, Page 55
1.8.2 Lífeyrissjóður verkfræðinga
Ársskýrsla stjórnar Lífeyrissjóðs verkfræðinga
stjórnartímabilið 21. maí 2001-22. maí 2002
I þessari skýrslu um starfsemi sjóðsins á árinu 2002 er efninu skipt í fjóra meginhluta:
• Avöxtun fjármuna sjóðsins og fjármál hans að öðru leyti.
• Fjárfestingarstefnu sjóðsins og framkvæmd hennar.
• Réttindi sjóðfélaga.
• Rekstur sjóðsins og þjónustu við sjóðfélaga.
Ávöxtun og fjármál
Arið 2002 var versta ár í sögu lífeyrissjóðsins hvað ávöxtun varðar. Fjárfestingartekjur
voru neikvæðar um 994 milljónir króna og raunávöxtun sjóðsins var neikvæð um 10,58%.
Þetta stafaði annars vegar af áframhaldandi lækkun hlutabréfaverðs á helstu mörkuðum
erlendis þriðja árið í röð, en hins vegar varð styrking íslensku krónunnar til þess að auka
enn á tapið af erlendum eignum. Nafnávöxtun erlendra verðbréfa í eigu sjóðsins var
neikvæð um 25,9% í dollurum sem þýddi 42% í krónum og var um 5,5% lakari en vegin
viðmiðunarvísitala erlenda safnsins.
Nafnávöxtun íslenskra hlutabréfa í eigu sjóðsins var hins vegar afar góð, eða jákvæð um
21,3%, og íslensk markaðsskuldabréf skiluðu sjóðnum einnig mjög góðri útkomu, 13,7%
nafnávöxtun. Nafnávöxtun samtryggingardeildar var neikvæð um 8,79% á árinu 2002,
raunávöxtun (fyrir rekstrarkostnað) var neikvæð um 10,31%.
Meðaltal hreinnar ávöxtunar síðustu 5 ár er jákvætt um 1,06%.
Eignir sjóðsins í erlendum gjaldmiðlum námu í lok
ársins 2002 2.279 milljónum króna og höfðu lækkað
um 41,4% milli ára. Vægi þeirra í heildareignum
sjóðsins var 19,2%, en var 32,4% í lok ársins 2000.
Eins og á undanförnum árum hefur erlenda hluta-
bréfasafnið að mestu leyti verið í eignarstýringu hjá
Morgan Stanley í London.
Síðasta ár var afleitt í tvennum skilningi. Hluta-
bréfavísitölur lækkuðu verulega á árinu en safnið
hjá Morgan Stanley lækkaði enn meira, fór um 8,5%
neðar en viðmiðunarvísitalan. Rétt er þó að minna á
Raunávöxtun samtrygglngardeildar.l
5 1
Félagsmál Vfl/TFl