Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2003, Page 58
hefur því verið haldið á málum af varfærni og undanfarin misseri hefur verðbréfasafn
sjóðsins fjarlægst markmið fjárfestingarstefnunnar. Þetta hefur reynst vera rétt ákvörðun
til þessa en vissulega kann að koma í ljós eftir 1, 2 eða 3 ár að ekki hafi verið brugðist
nógu skjótt við að auka fjárfestingar í hlutabréfum á ný til að hagnast á uppsveiflunni.
Frá því að sjóðurinn hóf að fjárfesta í erlendum verðbréfum árið 1995 nemur heildar-
kaupverð þeirra um 35,5 milljónum dollara. Virði safnsins nam tæpum 28 milljónum
dollara í árslok 2002 og hafði þannig lækkað um 21,2% í dollurum talið. í reikningum
sjóðsins í íslenskum krónum er lækkunin hins vegar mun minni. Kaupverðið nam sam-
tals 2.538 milljónum króna á gengi hvers tíma, en staðan í árslok 2002 var 2.254 milljónir
króna. Lækkunin nemur 11,2% eða 284 milljónum króna.
Réttindi sjóðfélaga
Tryggingafræðingur sjóðsins, Bjarni Guðmundsson, hefur gert tryggingafræðilega úttekt
á stöðu sjóðsins í árslok 2002. Niðurstöður úttektarinnar eru þessar í stuttu máli:
Heildareignir sjóðsins eru um 2.779 milljónum króna lægri en heildarskuldbindingar
sjóðsins, eða sem nemur 8,9%. Hefur hér orðið lækkun frá fyrra ári, þegar heildareignir
voru um 5,02% minni en skuldbindingar.
Samkvæmt lögum ber að breyta réttindaákvæðum samþykkta ef munur milli eignarliða
og lífeyrisskuldbindinga nemur meira en 10% eða hefur haldist yfir 5% samfellt í fimm
ár. Munurinn hefur haldist milli 5 og 10% í tvö ár og er því ekki tilefni til að breyta rétt-
indaákvæðum sjóðsins.
Rekstur og þjónusta
Lífeyrisgreiðslur sjóðsins námu rúmum 125 milljónum króna á árinu 2002 og hækkuðu
um 6,9%. Alls fengu 143 einstaklingar greiddan lífeyri úr sjóðnum á árinu og voru 6 fleiri
en árið áður. Ellilífeyrisþegar voru 99 talsins, örorkulífeyri fengu 9 sjóðfélagar,
makalífeyrisþegar voru 30 og 5 fengu barnalífeyri.
Lán til sjóðfélaga námu 362 milljónum króna á síðasta ári sem er um 2,8% lækkun milli
ára og um 7% lækkun milli ára miðað við byggingarvísitölu. Hlutfall sjóðfélagalána af
heildareign sjóðsins hækkaði þó milli ára og er nú 29,7%. Vextir af sjóðfélagalánum voru
óbreyttir, 3,5% verðtryggðir vextir.
Rekstrarkostnaður sjóðsins hækkaði um 6,6 milljónir króna á milli ára, úr 31,2 milljónum
króna í 37,8 milljónir króna, eða um 21%. Hækkunin stafar einkum af endurnýjun tölvu-
kerfa og vegur þar þyngst að eldri kerfi sjóðsins voru afskrifuð að fullu. Hlutfall rekstrar-
kostnaðar af heildareignum sjóðsins hækkaði því milli ára en þess er að vænta að sú
hækkun gangi til baka á þessu ári að mestu eða öllu leyti.
Skipt var um þrjú helstu tölvukerfi sjóðsins á árinu 2002. Tekið var í notkun lífeyriskerfið
Jóakim og fjárhagsbókhald og skuldabréfakerfi af Navision gerð. Það er hugbúnaðar-
fyrirtækið Strengur sem rekur kerfin og hýsir þau fyrir sjóðinn. Með nýjum kerfum er
unnt að auka sjálfvirka, rafræna vinnslu til muna, minnka innsláttarvinnu starfsmanna
sjóðsins og bæta upplýsingagjöf til sjóðfélaga og launagreiðenda, m.a. með aðgengi á
Internetinu.
Meðalfjöldi starfsmanna hjá sjóðnum á árinu 2002 var fimm. Heildarfjárhæð launa var
kr. 29.685.854, þar af nam heildarfjárhæð launa til stjórnar og framkvæmdastjóra kr.
9.021.648.
5 4 | Arbók VFl/TFl 2 0 0 2