Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2003, Page 202
Lagning hefst í Dunnet Bay. Frá vinstri:Vanni
Scodeggio, verkefnisstjóri Pirelli, Jón Birgir
Jónsson, stjórnarformaður FARICE hf, Lord
Dunnet.fulltrúi Bretadrottningar í norður-
Skotlandi, Bill Allan, forstjóri Thus plc.
þessum iðnaði eru ekki ýkja mörg. Sum eru ein-
göngu í framleiðslu, önnur sinna aðeins lagningu,
en einnig eru dæmi um fyrirtæki sem sjá um hvort
tveggja. Útboðið var því í tveimur hlutum, annars
vegar strengkerfið og hins vegar lagning þess.
Lokatilboð í strengkerfið bárust frá Pirelli
Submarine Telecom Systems, Alcatel og Tyco. I
lagninguna buðu Elettra (systurfyrirtæki Pirelli),
Alcatel og Global Marine. Fyrirtækin Pirelli og
Elettra urðu hlutskörpust og var skrifað undir
samning 27. nóvember 2002. Skömmu áður hafði
hlutafélagið FARICE hf. verið stofnað. Um svipað
leyti var skrifað undir samning við Thus plc um
innanlandsleiðina í Skotlandi.
I atburðalýsingunni hér að framan hefur verið stikl-
að á stóru. Fjölmörg afbrigði af strenglausnum voru
skoðuð, sem ekki er lýst hér. Þar á meðal má nefna
tengingar við sæstrengi milli Norður-Ameríku og
Evrópu og streng til írlands.
Fjármögnun
Þegar fyrst var farið að huga að þessari framkvæmd var fjarskiptamarkaðurinn í örri
þróun. Samkeppni var að ryðja sér til rúms og mikil bjartsýni ríkti um arðsemishorfur.
Því var það talið eðlilegt að verkefnið sem slíkt stæði undir sér á eigin forsendum. Það
verður einnig að líta til þess að á þessum tíma var trú manna á tekjumöguleikum
Internetsins nær takmarkalaus. Því voru fyrstu hugmyndir þær að hægt yrði að fjár-
magna verkefnið í formi verkefnisfjármögnunar (project financing). Þegar til kastanna
kom reyndist það ekki hægt, bæði vegna tregðu einstakra aðstandenda verkefnisins og af
því að fjarskiptaheimurinn var ekki talinn eins góður lántakandi og hann hafði verið á
undirbúningsstigi verkefnisins. Það varð því niðurstaðan að bjóða út fjármögnunina með
þeim hætti að aðalaðstandendur verkefnisins, Síminn, ForoyaTele og íslenska ríkið,
tryggðu greiðslur lána. Niðurstaðan eftir lánaútboð varð að gerður var samningur við
Islandsbanka og Norræna fjárfestingarbankann um fjármögnunina.
Framkvæmd
Stærsti þátturinn í framkvæmdinni var lagn-
ing sæstrengsins sjálfs samfara uppsetningu
tækja í sæsímastöðvunum á Seyðisfirði,
Funningsfirði og Dunnet Bay. Húsnæði
sæsímastöðvanna á íslandi og í Færeyjum er
í eigu Símans annars vegar og ForoyaTele
hins vegar og aðstaðan leigð FARICE hf. í
Dunnet Bay þurfti FARJCE hf. aftur á móti
að reisa eigið hús fyrir sæsímabúnaðinn.
Þetta var gert á fyrri hluta ársins 2003 og var
aðalverktaki skoska fyrirtækið John Gunn &
Sons. McBains & Hanson Associates hafði
með höndum eftirlit.
1 9 8I Árbók VFl/TFl 2003