Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2003, Page 319
sem liggur fyrir er því að einfalda viðmót og öryggi þjónustugátta. Til þess að tryggja
þetta og þar með gera notkun heimaneta mögulega þarf að nota opna staðla sem öll tæki
á heimilinu skilja.
Staðlar fyrir þjónustugáttir
Fram hafa komið nokkrir staðlar fyrir þjónustugáttir og fremstur þeirra er OSGi (Open
Services Gateway initiative). Einnig er til staðall fyrir myndtölvur (e. Set-top Box) sem
heitir MHP (Multimedia Home Platform). Microsoft er einnig að koma sinni tækni á
framfæri. Hún er nefnd .NET og þar er lögð megin áhersla á vefþjónustu (e. Webservices).
OSGi eru samtök sem stofnuð voru 1999 með það markmið að skilgreina opna staðla sem
fjalla um flutning breiðbandsþjónustu yfir internetið inn á heimanet. Með OSGi fæst
staðlað viðmót fyrir þá sem vilja forrita þjónustu fyrir heimanet. Slíkt viðmót er nefnt API
(Applications Programme Interface). OSGi gerir ráð fyrir allri helstu nettækni sem áður
er nefnd. Einnig er gert ráð fyrir að OSGi þjónustu sé hægt að keyra á mjög
margvíslegum tölvum alveg frá litlum innbyggðum tölvum (e. embedded) upp í stóra
netþjóna. Þetta geta verið farsímar, mótöld, þráðlausir aðgangspunktar, heimagáttir,
myndtölvur og stjórnkerfi í bílum. Margir framleiðendur hafa nýtt sér OSGi staðlana,
þ. á m. hinn íslenskættaði Homeportal [6].
MHP (Multimedia Home Platform) [7] er opinn staðall þróaður af verkefni á sviði
stafræns sjónvarps sem nefnt er DVB (Digital Video Broadcasting). Staðallinn hefur verið
gefinn út sem ETSI-staðall (European Telecommunications Standards Institute) [8]. Hann
skilgreinir almennt forritunarviðmót (API) fyrir allar gerðir af búnaði sem spilar gagn-
virkt sjónvarpsefni. Með því að nota MHP þarf ekki að endursemja (e. authoring) mynd-
efnið fyrir hverja gerð búnaðar sem notaður er til spilunar. Búnaðurinn getur verið af
margs konar tagi, t.d. myndtölvur, stafræn sjónvarpstæki og PC-tölvur. Dæmi um
þjónustu sem hægt er að veita með MHP eru rafræn dagskrá, (e. Electronic Programme
Guide), textavarp af nýrri kynslóð, rafræn viðskipti og menntun. f síðari útgáfum af MHP
er áætlað að bjóða upp á geymslu myndefnis og aðgang að tölvupósti og veraldar-
vefnum.
Microsoft .NET er hugbúnaðarumhverfi sem ætlað er til keyrslu á svonefndri vefþjón-
ustu (e. Webservices). Eins og OSGi og MHP er hægt að setja .NET umhverfið upp á
margs konar tölvubúnaði, frá litlum handtölvum, farsímum og upp úr. Minni og
sérhæfðari búnaður notar takmarkað stýrikerfi
(embedded) sem styður Universal Plug and Play
(UPnP) og tengist heimanetinu á sjálfvirkan hátt.
Búnaður lætur þá sjálfvirkt vita hvaða eiginleikum
hann býr yfir og hvaða þjónustu harm getur boðið
notendum um leið og hann tengist heimanetinu.
Forrit eru gjarnan skrifuð í XML- (eXtensible
Markup Language) og keyra hvar sem .NET hefur
verið sett upp. Um er að ræða lítil endurnýtanleg
forrit sem geta skipst á gögnum yfir internetið.
Microsoft hefur sett á markaðinn stýrikerfi sem
ætlað er sérstaklega fyrir heimanet og er nefnt
Microsoft Windows XP Media Center Edition . Með
þessu nýja stýrikerfi verða PC-tölvur þjónustugáttir
fyrir stafrænt efni. Mikilvægur kostur er að efnis-
valinu er hægt að stýra með fjarstýringu.
---------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------■s
( - ■ ■ J
H
Mynd 3. Dæmi um PC-tölvu sem er nærri hljóð-
laus og getur verið hluti af tækjastæðu í stofu.
Tækni- og vísindagreinar |315