Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.01.1995, Page 64

Læknablaðið - 15.01.1995, Page 64
52 LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81 ur að hafa í huga að einstaklingar breytast og nýjar aðstæður gera það oft að verkum að fólk skiptir um skoðun. Því er aldrei hægt að vera fullkomlega viss um að skrifleg yfirlýsing sjúk- lings endurspegli einlægan vilja hans þegar á hólminn er komið. í öðru lagi má grafast fyrir um það hvaða ákvörðun sjúklingurinn myndi taka ef hann væri með réttu ráði og fullri rænu. Hér reynir fyrst og fremst á þá sem þekkja sjúklinginn vel, skapgerð hans, lífsgildi og skoðanir. Ut frá upplýsingum sem vinir og aðstandendur gefa er reynt að komast að hvað hann hefði sjálfur ákveðið undir þeim kringumstæðum sem hann nú býr við. Með þessari aðferð er eins og ífyrra tilvikinu reynt að virða sjálfræði sjúklingsins. Ókosturinn er hins vegar sá að það er alltaf erfitt að setja sig í spor annarra, og því eru skoðanir aðstandenda á vilja sjúklingsins í mörgum tilvikum mjög umdeilanlegar. í þriðja lagi má miða ákvörðunina við það sem talið er þjóna best heill sjúklingsins. Þetta má einnig orða þannig að rétt sé að miða við það sem álitið er að skynsöm manneskja með heilbrigða dómgreind myndi gera undir sömu kringumstæðum. Vandinn hér er sá að stund- um greinir menn á um það hvað skynsöm manneskja myndi gera. Hér er því oft erfitt að sættast á eina lausn. Ef þessi viðmiðun er not- uð þá er fyrst og fremst stefnt að því að standa vörð um velferð sjúklingsins. Þótt reynt sé að nota þessar þrjár aðferðir, þá er engin þeirra gallalaus eins og ég hef bent á. I sumum tilvik- um getur skipt höfuðmáli hvaða viðmið eru höfð að leiðarljósi við ákvarðanatökuna því viðmið okkar geta leitt til ólíkrar niðurstöðu um meðferð og getur þessi mismunur skilið á milli lífs og dauða. Til skýringar ætla ég að lýsa hinu svokallaða Cruzan máli í Bandaríkjunum þar sem einmitt reyndi á þetta atriði. Nancy Cruzan var 25 ára stúlka sem var í dauðadái (persistent vegetative state) eftir bíl- slys. Hún andaði sjálf og fékk næringu í gegn- um slöngu sem með aðgerð var stungið í maga hennar. Þegar ljóst var að Nancy kæmist aldrei til meðvitundar fóru foreldrar hennar fram á að hætt yrði að gefa henni næringu. Stjórn spítalans lagðist hins vegar gegn því. Af þessu spunnust löng málaferli sem fram fóru á öllum helstu dómsstigum Bandaríkjanna. Til að gera langa sögu stutta þá kom að því að fallist var á beiðni foreldranna og var þá næringagjöf hætt. Sú niðurstaða dómsins byggðist fyrst og fremst á vitnaleiðslum þar sem rætt var við ýmsa aðila sem þekkt höfðu stúlkuna og bar þeim saman um að hún myndi sjálf ekki vilja viðhalda því ástandi sem hún var í. Það væri því að öllum líkindum ósk stúlkunnar sjálfrar að næringar- gjöfin yrði stöðvuð (7). I þessu tilviki má því segja að niðurstaða dómsins hafi byggt á öðr- um liðnum í upptalningunni hér að framan, þar er reynt var að komast að því hver vilji stúlk- unnar hefði verið ef hún hefði verið hæf til að taka ákvörðun sjálf. Það siðferðilega gildi sem haldið var í heiðri með þessum dómi var sjálfsákvörðunarréttur manneskjunnar. Mér vitanlega hefur ekki reynt á það fyrir dómi hér á landi eftir hverju ber að fara þegar ákvarðan- ir af þessu tagi eru teknar. Segja má að í Kan- ada og í Bandaríkjunum hafi verið tilhneiging til að leggja meiri áherslu á sjálfsákvörðunar- rétt sjúklingsins en velferð hans. Þar er því reynt að fara eftir því sem sjúklingurinn sjálfur hefði óskað sé þess nokkur kostur. Gagnslaus meðferð Hingað til hef ég einbeitt mér að þeirri hlið umræðunnar sem fyrst og fremst snýr að sjúk- lingnum sjálfum og þátttöku hans í ákvörð- uninni. Það er þó erfitt að skilja við efni sem ber yfirskriftina: „Siðferðileg vandamál tengd ákvarðanatöku“ án þess að minnast á „gagns- lausa meðferð" (futile treatment). Þegar taka á ákvarðanir um meðferð dauð- vona sjúklings virðist blasa við að ekki sé rétt að halda áfram meðferð sem telja má gagns- lausa, því slík meðferð yrði sjúklingnum til einskis gagns og ylli honum jafnvel skaða. Hin siðferðilega spurning er því ekki sú hvort veita eigi gagnslausa meðferð heldur fremur hvaða meðferð sé gagnslaus og hver ekki. Gagnslausa meðferð má skilgreina þannig: Meðferð er gagnslaus ef sjúklingurinn er svo veikur eða slasaður að telja má víst að markmiðin með meðferðinni muni ekki nást (8,9). Þrátt fyrir skýra skilgreiningu geta vaknað margar erfiðar spurningar þegar ákveða á hvaða meðferð sé til gagns og hver ekki. Til að gera þau álitamál sem upp geta komið ljósari ætla ég að vísa í sjúkratilfelli. Um var að ræða 62 ára gamlan mann með öndunarfærasjúkdóm á lokastigi. Hann lá á gjörgæsludeild og endurteknar tilraunir til að venja hann af öndunarvél höfðu verið árang- urslausar. Læknar voru almennt sammála um að hann gæti ekki lifað utan gjörgæslunnar.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.