Læknablaðið : fylgirit - 01.07.1978, Blaðsíða 7
Jón Þorsteinsson
form. Gigtsjúkdómafélags fslenskra lækna
Avarp
Góðir kollegar.
Arið 1977 er Alþjóðlegt Gigtarár. Alþjóða Gigtarsambandið,
"International League against Rheumatism", hefur helgað þetta ár baráttu
gegn gigt með blessun Alþjóða Heilbrigðismálastofnunarinnar. Tilgangurinn
með þessu ári er 1 fyrsta lagi að fræða leika og lærða um gigt, 1 öðru
lagi að bæta aðstöðu hinna gigtsjúku og í þriðja lagi að efla vísindalegar
rannsóknir á gigtsjúkdómum.
í þessu skyni hófst Gigtsjúkdómafélag íslenskra lækna þegar handa 1
fyrra um undirbúning Gigtarárs og stofnaði leikmannafélag "Gigtarfélag
fslands". Formaður þess er Guðjón Hólm, lögfræðingur og eru félags-
menn Gigtarfélags Islands nú þegar eitthvað á annað þúsund. Félagið hóf
þegar fræðslustarfsemi með fundarhöldum, erindaflutningi og útgáfustarf-
semi og það lét það verða eitt fyrsta verk sitt að safna fé til tækjabúnaðar
rannsóknarstofu 1 ónæmisfræði gigtsjúkdóma, sem þegar er kominn vísir
að 1 Landspitalanum. Gigtarfélag fslands vinnur nú ásamt Gigtsjúkdóma-
félagi fslenskra lækna að undirbúningi Gigtardags sem er fyrirhugaður um
veturnætur og um svipað leyti mun póststjórnin fslenska gefa út gigtarfri-
merki f tilefni Gigtarárs.
Okkur finnst ærin ástæða til aUs þessa umstangs. Gigtin hefur hrjáð
fslendinga um aldir. Jón Steffensen prófessor hefur fundið afleiðingar liða-
gigtar 1 beinum gömlu ÞjórsárdæUnganna. Arið 1846 skrifaði Schleisner
doktorsritgerð um sjúkdóma á fslandi og voru þá sullir, gigt og hysteria
algengustu sjúkdómarnir. 10%þeirra sem þá leituðu læknis voru gigtveikir.
Þetta hlutfall er það sama enn þann dag f dag. Helgi Valdimarsson og
félagar á Hvammstanga og Guðjón Magnússon og ólafur Sveinsson f Skaga-
firði hafa komist að svipaðri niðurstöðu hvað viðvíkur gigt meðan sullir og
hysteria eru hverfandi. Það var þvf auðsótt mál fyrir stjórn Gigtsjúkdóma-
félag fslenskra lækna að fá fræðslunefnd læknafélaganna til að helga þetta
námskeið gigtsjúkdómum. Við fengum Arsæl Jónsson til að standa fyrir
framkvæmdum sem hann hefur gert með mestu prýði, og það er ekki hans
sök ef eitthvað fer úrskeiðis. Eins og prógramið ber með sér höfum við
lagt áherslu á fjölbreytilegt efnisval. 30 fyrirlesarar og fundarstjórar
vikust fúsir undir þá kvöð að troða hér upp.
Ég ætla aðeins að kynna erlendu fyrirlesarana: Erik AUander er
prófessor f social medicine við KaroUnska Institutet f Stokkhólmi og yfir-
læknir á Social Medicinsku deildinni á Huddinge Sjukhus. Hann er mjög
þekktur epidemiolog og hefur verið potturinn og pannan f samstarfi Hjarta-
verndar og Gigtsjúkdómafélags íslenskra lækna um hóprannsókn á gigtsjúk-
dómum á Islandi.
W. Watson Buchanan er prófessor í medicine við háskólann í Glasgow
og yfirlæknir á einni þekktustu gigtardeild í sameinaða konungdæminu, Baird
Street Hospital f Glasgow. Hann er annálaður fyrirlesari.
Það var fyrirhugað að vera búinn að prenta öll erindin fyrir nám-
skeiðið en af tæknilegum og fjárhagslegum ástæðum var það ekki hægt og
verða þau gefin út sem supplement Læknablaðsins nú strax að námskeiði
loknu. Svo leyfi ég mér að setja þetta námskeið og býð alla velkomna til
leiks.
5