Læknablaðið : fylgirit - 01.07.1978, Blaðsíða 75
AriS 1950 lýsti Forestier beinbryggju-
myndun á milii hryggjarliSa hjá miSaldra
og rosknu fólki og nefndi þetta fyrirbæri
ankylosing hyperostosis, en sjúkdómurinn
hefur siSan oft veriS kenndur viS hann
sjálfan og nefndur Forestier's disease8.
Þessu fyrirbæri mun þó hafa veriS lýst
áSur8. ÞaS hefur gengiS undir ýmsum
nöfnum, en er nú oftast nefnt ankylosing
hyperostosis, Forestier's disease eSa
Diffuse idiopathic skeletal hyperostosis,
skammstafaS DISH.
Þennan sjúkdóm getur veriS erfitt aS
greina frá hryggikt, en helsti munurinn
er, aS sá fyrrnefndi veldur mun minni
einkennum frá baki en hryggikt og grein-
ist siSar á æfinni. Sökk er ennfremur
eSUlegt hjá þessum sjúklingum. A röntgen-
myndum sjást stundum útbreiddar bein-
bryggjur á milli hryggjarliSa, en þær hafa
dálftiS annaS lag en sést 1 hryggikt og
breytingar sjást ekki 1 spjaldliSum. Sýnt
hefur veriS fram á nokkra fylgni HLA-B27
og Forestier's disease, þessi vefjaflokkur
hefur fundist hjá 16 af 47 sjúklingum eSa
34%**. Sjúklingum meS Forestier,'s
disease er einnig hætt viS kalkútfellingum
eSa sporamyndunum f sinafestum og hefur
þessi tilhneiging valdiS erfiSleikum eftir
skurSaðgerSir á mjaðmarliSum9.
ViS þá athugun, sem hér greinir frá,
fannst einn sjúklingur með Forestier's
disease. Er þetta 73ja ára gamall karl-
maður, sem hafði verið grunaður um
spondylitis ankylopoetica, en breytingar,
sem sáust á röntgenmyndum af hrygg,
voru dæmigerSar fyrir Forestier's disease.
Sjúkrasaga staSfestir einnig þessa grein-
ingu. Þessi sjúklingur hefur ekki vefja-
flokkinn HLA-B27.
Þær ályktanir verSa dregnar af ofan-
greindum niSurstöSum, aS fylgni hryggikt-
ar og vefjaflokksins HLA-B27 á fslandi sé
hin sama og annars staðar á Vesturlöndum.
Að allir sjúklingar, sem vefjaflokkun var
gerS hjá (17 af 39), skyldu hafa vefjaflokk-
inn HLA-B27 bendir einnig til þess, aS
þau skilmerki, sem voru notuð hafi veriS
nógu ströng. TfSni fylgikvilla og hlutfall
karla og kvenna falia innan þeirra marka,
sem fundist hafa f öðrum löndum. Af
þessari athugun verSa ekki dregnar ákveðn-
ar ályktanir um algengi sjúkdómsins hér
á landi, þótt líklegt virðist, aS hann sé
ekki algengari hér en gerist á Vesturlönd-
um, en þar hefur algengi sjúkdómsins
veriS talið um 0,1%. Hátt hlutfall sjúkl-
inga með einkenni frá útlimaliSum gefur ef
til vill til kynna aS f þennan hóp hafi val-
ist sjúklingar meS fremur alvarlegan sjúk-
dóm. Athugun þessari á hryggiktarsjúkl-
ingum hér á landi er ekki lokið.
Heimildir:
1. Bennet, P.H. & P.H.N. Wood,
Population studies of the Rheumatic
Diseases 456-457, (Excerpta Medica),
Amsterdam, 1968.
2. Brewerton, D.A. & al. Ankylosing
Spondylitis and HLA-B27. Lancet 1:904-
907, 1973.
3. Brewerton, D.A. HLA-B27 and the
Inheritance of Susceptibily to Rheumatic
Disease, Arthritis rheum, 19:656-668.
1976.
4. Cobbs, S. The Frequency of the
Rheumatic Diseases 105-110 (Harward
University Press), Cambridge,
Massachusetts 1971.
5. Forestier, J. & Rotes-Querol J. Senile
ankylosing hyperostosis of the spine.
Ann rheum. Dis. 9,321-330, 1950.
6. Gofton, J.P. & al. Ankylosing spondylitis
in a Canadian Indian population. Ann
rheum Dis. 25:525-527, 1966.
7. Kellgren, J.H. The Epidemiology of
rheumatic diseases. Ann rheum. Dis.
23:109-122, 1964.
8. Oppenheimer, A.: Calcification and
ossification of vertebral ligaments
(spondylitis ossificans ligamentosa):
roentgenstudy of pathogenesis and
clinical significance. Radiology 38:
160-173, 1942.
9. Resnick, D. & al. Postoperative
Heterotopic Ossification in Patients
with Ankylosing Hyperostosis of the
Spine. (Forestier's Disease) J.
Rheumat. 3: 313-320., 1977.
10. Schlosstein L. & al. High association
of an HL-A antigen, W 27, with
ankylosing spondj'litis. N. Engl. J.Med.
288:704-706., 1973.
11. Shapiro R.F. & al. The Association
of HIAO B 27 with Forestier's Disease
(Vertebral Ankylosing Hyperostosis).
J. Rheumatol 3:4-8, 1976.
12. Wright V. & J.M.H. Moll. Seronegative
polyarthritis, 81-167 (North-Holland
Pubbshing Company) Amsterdam 1976.
73