Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.06.1931, Page 88
278
Fjármálin.
[Stafmir
alveg óhæf óstjórn á fjármál-
um, að láta skuldirnar aukast
hraðara en nokkru sinni fyr í
þeim árum, þegar ríkið fær
meiri tekjur milli handa en
nokkru sinni fyr.
Hinar sorglegu afleiðingar
þessarar óstjórnar eru nú að
koma í ljós. Vaxtabyrði ríkis-
sjóðs er orðin þyngri en nokkru
sinni fyr. Samkvæmt landsreikn-
ingunum hafa vextir af skuld-
um ríkissjóðs orðið sem hér
segir:
1924 kr. 1.238.816.76
1925 kr. 1.010.917.44
1926 kr. 710.409.22
1927 kr. 701.560.20
1928 kr. 696.451.12
1929 kr. 934.737.64
Lengra ná reikningarnir ekki
ennþá. Á yfirstandandi ári verð-
ur vaxtabyrðin, sem hvílir á rík-
issjóði, um eða yfir 1 milljón
300 þús kr., eða hærri en 1921,
en þá hefir hún hæst verið hing-
að til. Samningsbundnar afborg-
anir eru komnar yfir milljón
kr. á ári, þrátt fyrir það að 12
millj. kr. lánið frá nóv. 1930 er
afborgunarlaust enn. Vextir og
afborganir slaga hátt upp í 2Va
millj. kr. á ári. Þetta þola tekj-
ur ríkissjóðs ekki í venjulegu
árferði. Ekkert verður afgangs
til verklegra framkvæmda.
Framfarirnar stöðvast. Þetta er
fyrsta afleiðing fjármálaóstjórn-
arinnar.
Rætur þessarar meinsemdar
eru margvíslegar, og verða ekki
raktar til neinnar hlítar í þessari
stuttu grein. Aðeins skal drepið
á tvent.
Stjórnin hefir ekki getað haft
neinn hemil á tilhneigingum sín-
um til aukningar árlegra út-
gjalda, með því að bylta um
og breyta til á þjóðarbúinu og
með fjölgun starfsmanna. Hin
stórlega auknu árlegu útgjöld,
sem þessu fylgja, eiga sinn þátt
bæði í þeirri eyðslu og þar af
leiðandi skuldasöfnun, sem orð-
in er, og í þeirri hækkun fastra
gjalda á fjárlögunum, sem nú,
ásamt vaxtabyrði skuldanna,
útilokar framhald verklegra
framkvæmda.
Eftir eyðslu þessara 30 millj"
óna umfram áætlanir fjárlag-
anna er nú ástandið hjá fjár
málaráðuneytinu orðið þannig,
að þeir sem eiga að fá greidda
reikninga úr ríkissjóði, verða að
bíða viku eftir viku og jafnvel
mánuðum saman, án þess að
greiðsla fáist, sumir hverjir að
minsta kosti.
Auðvitað ætti núverandi stjóm