Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.06.1931, Page 104
294
Síldareinkasalan.
[Stefnir
yfir það, hve allur tilkostnaður
er gífurlegur við Einkasöluna.
Styðst eg í þeim efnum eingöngu
við skýrslu forstjórans sjálfs og
við reikninga einkasölunnar, sem
ennþá liggja fyrir, en þeir eru
eins og kunnugt er fyrir árin
1928 og 1929. Matskostnaður
hefir hækkað svo, að fyrsta
starfsár Einkasölunnar reyndist
hann 21 eyrir á tunnu, en er nú
kominn upp í 33 aura á tunnu,
og þó er matið af öllum talið ó-
viðunandi með því fyrirkomu-
lagi, sem Einkasalan héfir á því,
og litlu betra eða engu betra en
það var áður en Einkasalan
komst á. í því sambandi vil eg
geta um dálítið atvik, sem kom
fyrir síðastliðið ár, þegar Einka-
salan tók sér fyrir hendur að
senda nokkurs konar sýnishorn
af kryddsíld til Bandaríkjanna.
Er það góður vottur þess, hversu
vel er búið um matið undir ein-
okunarfyrirkomulaginu. Sýnis-
horn þetta var tekið af saltsíld,
sem eftir dómi yfirmatsnefndar
var óhœf til sölu innan lands.
Síðan var svo sett krydd í hana,
og er yfirmatsmenn síldareinka-
sölunnar neituðu að gefa út
vottorð um, að þetta væri góð
og gild vara, fœr stjórn Einka-
sölunnar einn af undirmönnum
þeirra til þess að gefa út vottorð.
Og síðan er sýnishornið sent til
Bandaríkjanna, og þessari vöru
er svo ætlað að ryðja braut ís-
lenzkri kryddsíld á hinum stóra
Bandaríkjamarkaði. Er það enn-
fremur gott dæmi um samvinnu
stjórnarinnar, að þetta athæfi
Einkasölunnar er gert að um-
talsefni í norðlenzka blaðinu
,,Alþýðumaðurinn“, en ritstjóri
blaðs þessa er Erlingur Friðjóns-
son, formaður útflutningsnefnd-
ar, sem auðvitað ber ábyrgð á
þessu tiltæki. Þetta skal eg láta
nægja til þess að sýna, hversu
matið er tryggilegt, og hversu
samvinnan er góð hjá þeim herr-
um, Einkasöluforstjórunum.
Árið 1928 sendi Einkasalan
þrjá menn út í því skyni að láta
þá kynna sér síldarverkun og
gera þá að starfsmönnum fyrir
Einkasöluna. En hversu sem far-
ið hefir með ferð þeirra, er það
víst, að þær tæpu 6 þúsundir
króna, sem ferðirnar kostuðu,
hafa ekki komið Einkasölunni að
gagni til langframa, því að eng-
inn þessara manna er nú í þjón-
ustu hennar. Annað gott dænn
um ráðsmennsku einkasölustjórn-
arinnar er skrifstofan í Kaup-
mannahöfn. Þar situr einn for'
stjóri Einkasölunnar, ásaæt