Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.2001, Síða 41

Læknablaðið - 15.02.2001, Síða 41
UMRÆÐA & FRÉTTIR / AF SJÓNARHÓLI STJÓRNAR aðgangur að heilbrigðisþjónustu. Önnur rök sem notuð eru á móti einkreknum sjúkrastofnunum, eru að ríkið (skattborgararnir) borgi þetta allt: laun, hús og tæki. Þetta er rétt, fyrir þetta er greitt með sköttum, sem sjúklingarnir hafa þegar greitt ríkinu fyrir væntanlega heilbrigðisþjónustu og þaðan koma peningamir. Alveg eins og rekstur Háskólasjúkra- hússins er kostaður af ríkinu. Hlutverk kaupandans, það er ríkisins, á að vera að nýta fjármunina sem best til að þjóna skattborgurunum. Önnur rök hafa verið þau, að þá verði skortur á menntuðu fólk til að sinna störfum á ríkisspítölum. Að mínu áliti eru þetta ekki haldbær rök. Fáist fólk ekki til vinnu þá er eitthvað að í vinnuumhverfinu og vinna þess væntanlega ekki metin að verðleikum. Séu ekki fyrir hendi valkostir um vinnustaði og vinnuumhverfi í heilbrigðisgeiranum, er mikil hætta á að það verði atgervisflótti úr til dæmis læknis- og hjúkrunarfræði. Þetta fólk fer að vinna erlendis eða við önnur störf og þeim fækkar sem leggja þetta nám fyrir sig. Ég man nú reyndar ekki til þess að þessi rök hafi verið notuð gegn hinu nýja óskabarni þjóðarinnar Islenskri erfðagreiningu, sem hefur dregið til sín fjölda fólks úr heilbrigðisgeiranum, en góðu heilli fjölgað valkostum fyrir fagfólk. Einnig hafa heyrst þau rök að með aukinni starf- semi utan sjúkrahúsveggjanna, dragi úr möguleikum til kennslu heilbrigðisstétta. Þetta hefur ekki verið raunin með þá einkreknu læknastöð Röntgen Dómus þar sem ég vinn. Við höfum frá upphafi tekið fullan þátt í menntun röntgentækna bæði bóklegri og verklegri. Það sama á við um læknanema síðustu tvö ár, þannig að það er allt hægt ef vilji til samvinnu er fyrir hendi. Þá hafa þau rök verið dregin fram að einkastofur sinni aðeins því auðvelda og ódýra. Meðan ekki má einkareka samfellda sólarhrings- þjónustu (einkasjúkrahús) hlýtur það að setja starfseminni utan ríkisspítala ákveðin takmörk. Öryggi og gæði og er jú það sem við viljum öll hafa í fyrirrúmi. Annað vandamál er að í sjúkrahúsrekstri hér á landi er ennþá lítið vitað um endanlegan kostnað við einstakar aðgerðir. Allt er einfaldlega greitt af skattpeningum og sett í eina hít. Ef fjárveiting dugir ekki lendir aukakostnaðurinn á eigandanum og rekstraraðilanum, ríkinu. Þessi aðferð í rekstri gengur ekki í einkarekstri. Erlendis er þessi kostnaðargreining víðast til staðar. Þar eru flóknar og dýrar aðgerðir gerðar á einkareknum sjúkrahúsum jafnt sem ríkisreknum Mín skoðun er sú að bæði ríkis- og einkarekstur eigi rétt á sér innan heilbrigðiskerfisins. Ég tel að sé báðum rekstrarformum veitt brautargengi muni það stuðla að gæðaþjónustu, auka hagkvæmni og flýta fyrir nýjungum og auka starfsánægju. Það er engin ástæða til annars en að nýta kosti beggja rekstrarforma í sátt og samlyndi án þess að níða skóinn hver af öðrum. Islenskrar erfðagreiningar sameiginlegan skilning á því, hvernig fara ætti með upplýsingar úr sjúkraskrám, sem fluttar yrðu í gagnagrunn án samþykkis, þ.e. fyrir D-dag og í annan stað hvenær þessi dagur yrði. Formaður LÍ bauð forstjóra IE að gera tillögur um þetta fyrir sitt leyti enda lágu sjónarmið Læknafélagsins fyrir frá því í maímánuði. Seinni fundur þessara aðila var 2. október og kom þá í ljós að ekkert lá fyrir frá hendi ÍE um þessi mál, en látið í veðri vaka að það gæti orðið strax daginn eftir. Þegar komið var fram í desember og ekkert hafði heyrst frá ÍE lýsti formaður LÍ óánægju sinni og óróleika með gang mála í tölvupósti til stjórn- arinnar og með afriti til landlæknis. Kom m.a. fram í því bréfi, að svo virtist, sem IE væri í óða önn að undirbúa samninga við fyrstu heilbrigðisstofnan- irnar án þess að taka nokkurt tillit til þessara við- ræðna eða gera ráð fyrir fyrirvörum þeim tengd- um. Væri það fullkomlega óeðlilegt að undirrita samninga við heilbrigðisstofnanir um afhendingu heilsufarsupplýsinga úr sjúkraskrám, þegar við- ræður stæðu yfir um grundvallarforsendur, sem afhending þessi ætti að hvíla á. Var þeirri skoðun lýst í bréfinu, að þessi þróun mála gæti ekki annað en skaðað þann trúnað, sem þó hefði ríkt í við- ræðunum þrátt fyrir ágreining. Brá svo við að Kristján Erlendsson, starfs- maður IE, hafði samband daginn eftir og lagði til að viðræðunum yrði haldið áfram sem fyrst. Þann 12. desember fékk LI síðan bréf frá forstjóra IE, þar sem hann tilkynnti að hann myndi ekki koma að þessu sjálfur og hefði falið Kristjáni og Einari Stefánssyni, prófessor, sem þá var einnig orðinn starfsmaður ÍE, að annast þessar viðræður. Tveim dögum áður hafði Kári tjáð sig í sjónvarpsþætti, þannig að ekki fór á milli mála að okkar mati hver Læknablaðið 2001/87 137
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.