Læknablaðið - 15.02.2001, Side 47
UMRÆÐA & FRÉTTIR / KONUR
LÆKNASTETT
innritast í háskóla og fleiri konur en karlar innritast í
læknadeild.
Hér á eftir fylgja þær tölulegu upplýsingar sem
mér tókst að finna hjá velviljuðu starfsfólki ýmissa
stofnana og félaga haustið 1997. Pær hafa verið
færðar til dagsins í dag og tala flestar sínu máli (tafla
I, mynd 1).
Eins og sjá má af töflu I og mynd 1, sem sýna sömu
tölur, hafa fleiri konur en karlar innritast í læknanám
síðastliðin fjögur ár. Enn eru þó færri konur en karlar
sem eru brautskráðar með fáum undantekningum
samanber árin 1993,1996 og 1997 þegar jafnmargar
eða fleiri konur voru brautskráðar.
Þeir sem kenna í læknadeild eru að miklum
meirihluta karlar enda fáar konur sem hafa kennslu-
stöður þar eins og í Háskólanum almennt. Víst er þó
að margar konur gegna stöðum stundakennara. Á
árunum 1969-1999 var ein kona prófessor í lækna-
deild en hún hefur nú látið af störfum vegna aldurs
(tafla II).
Ef litið er til Háskólans alls eru til tölur frá 1997
um svipaða þætti (tafla III).
Fjöldi lækna og breytingar á kynjahlutföllum
Alls voru 1049 læknar á íslandi fyrri hluta ársins 2000
en af þeim voru 958 sjötíu ára eða yngri, 751 karl og
207 konur (tafla IV). Þegar litið er á þennan hóp með
tilliti til aldursskiptingar sést að munurinn á fjölda
karla og kvenna fer minnkandi í yngri aldurshópum.
Tafla IV. Hlutfall karla og kvenna af læknum á íslandi áriö 2000*.
Aldur Konur(%) Karlar (%) Samtals n
61-70 (6) (94) 132
51-60 (10) (90) 232
41-50 (21) (79) 347
31-40 (42) (58) 157
27-30 (40) (60) 90
Samtals 95
* Upplýsingar frá LÍ.
Tafla V. íslenskir læknar erlendis*.
Land Karlar Konur 70 ára og eldri Alls
Finnland i 0 í
Danmörk 9 7 í 17
Svlþjóö 114 51 n 176
Noregur 80 36 0 116
Frakkland 0 1 0 1
England 14 6 0 20
Skotland 4 2 0 6
Þýskaland 2 0 0 2
Holland 6 5 0 11
Sviss 2 2 0 4
Kanada 2 2 0 4
Bandarikin 79 25 5 109
Eþíópía 0 0 1 1
Samtals 313 137 18 468
* Upplýsingar frá LÍ.
___•___Konur innritaöar
___•__Karlar innritaöir
. • Konur brautskráðar f
....... Karlar brautskráöir
Mynd I. Fjöldi innritaðra og brautskráðra karla og kvenna í lœknadeild HÍ1982-2000.
Þó má gera ráð fyrir að mikil hreyfing sé á læknum
frá 27-40 ára. Margir eru erlendis við framhaldsnám,
á förum utan eða að koma heim og tölur því
ónákvæmar í þeim aldurshópum.
íslenskir læknar erlendis voru á
sama tíma 468, af þeim 313 karlar
og 137 konur undir sjötugu en 18
sem voru 70 ára og eldri (tafla V).
Sérgreinaval
íslenskra lækna
Áhugavert er vita hvemig læknar
skipast í sérgreinar og hlýtur sú
vitneskja að vera mikilvæg fyrir
stefnumörkun í heilbrigðisþjónustu.
Ekki hefur enn verið gerð
sérstök athugun eða kyngreindur
samanburður á sérgreinavali lækna
á Islandi. Doktorsritgerð Þorgerðar
Einarsdóttur lektors í kynjafræði
við Félagsvísindastofnun HÍ fjallar
um sérgreinaval lækna í Gautaborg
og breytingar á því (3). Gögnum
hennar var safnað 1992 en þá voru
konur þegar orðnar helmingur
læknanema þar. Hún hefur einnig
birt grein um ritgerð sína á íslensku
Leyndardómar lœknastéttarinnar -
kynbundið val lœkna á sérgreinum
(4). Hlutfall kvenna í Læknafélagi
Gautaborgar var 31% á árinu 1992
(28% í landinu öllu) og
kynjaskiptingin milli sérgreinanna
var með tilliti til kvenna: öldrunar-
lækningar (57%), kvenþéttar-
lyflækningar (54%) (eins og
Þorgerður kýs að nefna ákveðnar
sérgreinar innan lyflæknisfræði),
Tafla VI. Sérgreinaval kvenna i læknastétt
á Islandi*.
Sérgrein Fjöldi
Heimilislækningar 23
Lyflækningar 13
Barnalækningar 11
Kvenlækningar 9
Svæfingalæknisfræöi 9
Augnlækningar 7
Barna- og unglingageölækningar 4
Geislagreining 4
Veirufræði 4
Blóösjúkdómar 3
Húö- og kynsjúkdómalækningar 3
Orku- og endurhæfingarlækningar 3
Ónæmisfræöi 3
Skurðlækningar 3
Smitsjúkdómalækningar 3
Öldrunarlækningar 3
Húðsjúkdómalækningar 2
Líffærameinafræði 2
Meinefnafræði 2
Sýklafræði 2
Taugalækningar 2
Barnalækningar fötlun 1
Blóðmeinafræði 1
Blóðónæmisfræði 1
Frumumeinafræði 1
Fæðinga- og kvenlækningar 1
Geislalækningar 1
Háls-, nef- og eyrnalækningar 1
Heyrnarfræði 1
Hjartalækningar 1
Húömeinafræði 1
Krabbameinslækningar 1
Kvenkrabbameinslækningar 1
Meltingarlækningar 1
Mynd- og geislagreining 1
Nýburalækningar 1
Nýrnalækningar 1
* Upplýsingar frá LÍ frá árinu 2000.
Læknablaðið 2001/87 143