Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.2001, Síða 51

Læknablaðið - 15.02.2001, Síða 51
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ÚRSKURÐUR SIÐANEFNDAR Úrskurður Siðanefndar Læknafélags íslands Árið 2001, föstudaginn 5. janúar, er f Siðanefnd Læknafélags Islands í máli Högna Óskarssonar gegn Boga Andersen kveðinn upp svofelldur ÚRSKURÐUR Mál þetta var tekið til úrskurðar að loknum munnlegum málflutningi 22. des. sl. Kærandi er Högni Óskarsson læknir og kærði Bogi Andersen læknir. Með bréfi til Læknafélags íslands, dags. 18. janúar 2000, kærði Högni Óskarsson geðlæknir Boga Andersen, lyflækni og sérfræðing í innkirtla- og efnaskiptasjúkdómum, fyrir tiltekin brot á siða- reglum Læknafélags íslands. Með kæru þessari kærði Högni í fyrsta lagi það sem Bogi Andersen sagði í viðtali í Ríkisútvarpinu 28. des. 1999, í öðru lagi endursögn fréttamanns af því sem Bogi sagði við hann í viðtalinu og í þriðja lagi vinnubrögð Boga Andersen við gerð skýrslu sem Sif Konráðsdóttir hrl. lagði fyrir Siðanefnd LÍ við um- fjöllun nefndarinnar á kæru á hendur Högna Óskars- syni vegna álitsgerðar sem Högni vann að beiðni verjanda í hæstaréttarmáli nr. 286/1999. Með bréfi til Læknafélags íslands, dags. 1. okt. 2000, kærði Högni Óskarsson Boga Andersen fyrir tiltekin brot á siðareglum Læknafélags íslands. Viðbótarkæruefnin eru: 1. Högni telur að Bogi Andersen hafi með því að semja greinargerð til Siðanefndar LÍ um efni sem sé órafjarri sérsviði hans brotið V. grein siðreglna, en þar segi: „Þekkið eigin takmarkanir og hæfni annarra." 2. Bogi Andersen hafi með sömu röksemdum og að ofan brotið 2. gr. siðareglna, 2. mgr. en þar segi: „Lækni hlýðir í starfi sínu að fara sem minnst út fyrir það verksvið sem menntun hans tekur til.“ 3. Enn fremur telur Högni að Bogi Andersen hafi gerst brotlegur við 19. gr. siðareglna LÍ með því að villa á sér heimildir á bak við hugtakið „færir sérfræðingar“ eins og standi í bréfi lögmanns kær- anda í hæstaréttarmáli nr. 286/1999, þegar ekkert bendi til þess að Bogi hafi haft faglega þekkingu til að fjalla um málið á þann hátt sem eðli málsins geri kröfu um. Líta verði svo á að Boga hafi verið kunnugt um á hvern hátt lögmaðurinn hagaði kynningu á sérfræðivinnunni að baki greinargerðar- innar í fylgibréfi sínu. Högni Óskarsson krefst þess að vegna brota þessara verði Bogi Andersen látinn sæta þeim viður- lögum sem við eiga. Kærði, Bogi Andersen, krefst sýknu af kærum Högna Óskarssonar og að Siðanefnd LÍ úrskurði að kærandi skuli greiða kærða kostnað að mati nefndarinnar vegna reksturs málsins fyrir nefndinni. Málavextir og gangur málsins Undir rekstri hæstaréttarmálsins nr. 286/1999 óskaði lögmaður ákærða í því máli eftir því við Högna Óskarsson að hann skilaði álitsgerð um skýrslu þriggja sérfræðinga sem höfðu að beiðni héraðsdóms rannsakað tiltekin atriði er vörðuðu stúlkuna, sem kært hafði ákærða í framangreindu máli. Lyktir framangreinds hæstaréttarmáls voru þær að ákærði var sýknaður með dómi Hæstaréttar uppkveðnum 28. okt. 1999. Með bréfi, dags. 15. nóv. 1999, til stjórnar LÍ óskaði Sif Konráðsdóttir hrl., lögmaður kæranda í framangreindu hæstaréttarmáli, eftir því að tiltekin atriði yrðu tekin til athugunar þar sem umbjóðandi hennar teldi Högna Óskarsson hafa gerst brotlegan við siðareglur lækna með skýrslu sinni. Undir rekstri málsins fyrir Siðanefnd LÍ lagði Sif Konráðsdóttir hrl. fram óundirritaða greinargerð sem hún mun hafa sagt stafa frá færum sérfræðingum. Lögmaðurinn neitaði að upplýsa hver eða hverjir væru höfundar greinargerðarinnar. Hinn 13. desember 1999 kvað Siðanefnd LI upp úrskurð vegna erindis þessa og var það niðurstaða nefndarinnar að Högni Óskarsson hefði ekki gerst brotlegur við siðareglur lækna í tengslum við gerð ofangreindrar skýrslu. Hinn 28. desember 1999 var haft viðtal í Ríkisútvarpinu við Boga Andersen lækni. í viðtali þessu kvaðst Bogi Andersen vera höfundur framan- greindrar greinargerðar. Með bréfi til Læknafélags íslands, dags. 18. jan. 2000, kærði Högni Óskarsson Boga Andersen fyrir tiltekin ummæli í viðtali þessu. í framhaldi af þessari kæru Högna Óskarssonar skrifaði Bogi Andersen stjórn LÍ bréf, dags. 29. febr. 2000, þar sem hann varpaði fram þeirri spumingu hvort ekki sé eðlilegt að siðanefndarmennirnir Allan Vagn Magnússon, Ásgeir B. Ellertsson og Runólfur Pálsson, víki úr Siðanefnd í máli þessu. Siðanefnd kvað upp úrskurð 28. apríl 2000 þar sem úrskurðað var að aðalmenn í Siðanefnd LÍ víki ekki sæti við meðferð á kæru Högna Óskarssonar á hendur Boga Andersen. Úrskurði þessum skaut Bogi Andersen til Gerðar- dóms LÍ með kæru, dags. 10. maí 2000. Gerðardómur LÍ kvað upp úrskurð 18. júlí 2000 þar sem úrskurðað var að aðalmenn í Siðanefnd LÍ skuli víkja sæti þegar nefndin fjallar um kæru Högna Óskarssonar á hendur Boga Andersen. Samkvæmt bréfi LÍ, dags. 28. ágúst I viðauka við lög Læknafélags íslands segir um Siðanefnd LI að forsendur og úrskurðarorð skuli birta í Læknablaðinu samkvæmt ákvörðun Siðanefndar. (Viðauki B, 20. gr.) Nefndin telur að birta beri forsendur og úr- skurðarorð í málinu. Læknablaðið 2001/87 147
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.