Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.2001, Síða 56

Læknablaðið - 15.02.2001, Síða 56
UMRÆÐA & FRETTIR / URSKURÐUR SIÐANEFNDAR um gildisdóma sem aðrar skoðanir. Kærandi eins og aðrir íbúar samfélagsins verði að una þessu. Af hálfu kærða er tekið fram að baki ummæla kærða hafi legið faglegar forsendur þar sem kærði hafi kynnt sér ítarlega fræðigreinar um efnið og byggt athugasemdir sínar, ummæli og skoðanir á þeim. Einstaklingar sem taka að sér sérfræðistörf fyrir aðila í dómsmálum verði að þola opinbera umfjöllun um sérfræðistörf sín, ekki síst ef niðurstaða dómsins verður umdeild. Einstaklingar sem taka að sér sérfræðistörf af þessu tagi verði því að þola opinbera umfjöllun jafnvel þó hún virðist óvægin gagnvart þeim einstaklingum sem þar eiga í hlut enda sé þess ætíð gætt í umræðunni að umfjöllunin og gagnrýnin séu málefnalegar. Kærði telur alla umfjöllun sína um álitsgerð kæranda uppfylla þessi skilyrði því hún hafi verið málefnaleg og vel innan þeirra marka sem lagaákvæði um tjáningar- og skoðanafrelsi skapi honum. Kærandi hafi sjálfur farið mjög óvægum orðum um saksóknara og lögmanninn, Sif Konráðsdóttur hrl., í fjölmiðlum. Aður en kærði kom fram opinber- lega hafi kærandi komið margoft fram í fjölmiðlum og lýst yfir áhuga sínum á að taka þátt í þeirri þjóðfélagsumræðu sem var í gangi í kjölfar dóms Hæstaréttar. Pannig hafi kærandi nýtt sér tjáningar- frelsi sitt til að gagnrýna opinberlega kæru stúlkunnar á hendur honum til Siðanefndar LÍ með fullyrðingum um að forsendur kærunnar væru rangar og atriði í málflutningi stúlkunnar væru ekki rétt. Þegar einstaklingur taki til máls á opinberum vettvangi megi hann alltaf búast við að honum verði svaráð. Ef andsvör séu málefnaleg sé með engum hætti hægt að amast við þeim. Daginn eftir útvarpsviðtalið við kærða hafi verið viðtal við kæranda á sama vettvangi þar sem hann hafi fengið rúman tíma til andsvara. Það samræmist hvorki stjórnarskrá Islands né mann- réttindasáttmálanum að læknar, sem taka þátt í þjóð- félagsumræðu eins og kærandi hafi gert í þessu máli, hafi rétt fram yfir aðra íbúa landsins til að koma í veg fyrir andsvör í sömu umræðu. Nýlegir hæstaréttardómar renni stoðum undir að allar tálmanir á tjáningar- og skoðanafrelsi beri að túlka mjög þröngt. I þessu sambandi er bent á mál nr. 337/1998 og mál nr. 272/2000. Varðandi einstök kæruatriði er af hálfu kærða m.a. tekið fram eftirfarandi: Kæruatriði A.l. Kærandi segi orðrétt í álitsgerð sinni: Svar mitt við spurningum Jóns Steinars Gunnlaugssonar hrl. er að kœrandi er ekki haldinn heilkenninu áfallastreita. Orðalag kæranda í álitsgerðinni sé ekki unnt að skilja öðru vísi en svo að hans sérfræðilega skoðun, sem hann hafi byggt á fyrirliggjandi gögnum, væri sú að stúlkan væri ekki haldin heilkenninu áfallastreitu. Af orðalaginu verði ekki annað ráðið en að með því sé kærandi að lýsa skoðun á því hver sjúkdómsgreining stúlkunnar sé eða sé ekki. Fyrir liggi að kærði sé ekki einn um að hafa skilið orðalag álitsgerðar kæranda með þessum hætti. í dómi Hæstaréttar segi: / álitsgerð Högna Óskarssonar geðlœknis frá 7. október 1999 kemur meðal annars fram sú skoðun, að kœrandi sé ekki haldin heilkenninu áfallastreitu, eins ogfram hafi komið í fyrri sérfrœðigögnum. I þessu sambandi er lögð á það áhersla að kærandi hafi rangfært staðreyndir úr sérfræðiskýrslu annars sérfræðings varðandi áfallastreitu. í inngangi að skýrslu sinni segi kærandi að hann hafi verið spurður álits á: „....hvort kærandi, X, sé haldin heilkenninu áfallastreita eins og staðhæft sé í skýrslu Jóns Fr. Sigurðssonar sálfræðings“. Skoðun á gögnum málsins leiði í ljós að hvorki Jón né aðrir sérfræðingar hafi haldið því fram að stúlkan hefði heilkennið áfallastreita, aðeins hafi þeir minnst á að stúlkan sýndi einkenni áfallastreitu. Þessi ósannindi kæranda hafi lagt grunninn að niðurstöðu hans og samtímis leyft honum á fullkomlega óheiðarlegan hátt að rýra trúverðugleika og hæfni dómkvadds sérfræðings fyrir Hæstarétti, sbr. niðurstöðu meirihluta Hæstarréttar. Orðalag álitsgerðar kæranda hafi verið með þeim hætti að fyrir liggi að ýmsir sem lásu hana hafi skilið það með sama hætti og kærði, þ.á m. sjálfur Hæstiréttur. Það hljóti að teljast innan eðlilegra marka þegar kærði leggi sama skilning á skýrslu kæranda og dómarar Hæstaréttar hafi lagt á hana. Á þessu beri kærandi sjálfur ábyrgð og hann verði að lifa við það að eftir að hann hafi skilað álitsgerð sé orðalag hennar háð túlkun þeirra sem lesa án tillits til hvað höfundur hafi talið sig vera að segja. Tilvísun kæranda í niðurstöðu Siðanefndar frá 13. des. 1999 sé hæpinn rökstuðningur. Fyrir liggi nú að einn nefndarmanna sem tók þátt í meðferð málsins hafi verið almennt vanhæfur til setu í nefndinni. Valdi það almennu vanhæfi allrar nefndarinnar til málsmeðferðar. Ef fallist yrði á þetta kæruatriði kæranda yrði ábyrgð af ónákvæmu orðalagi kæranda í eigin álitsgerð velt yfir á þá sem lesa álitsgerðina með öðrum skilningi en kærandi vilji að hún sé lesin. Slík niðurstaða væri óeðlileg. Kæruatrið A.2. Kærandi geti þess hvergi í álitsgerð sinni að hann sé eingöngu að styðjast við afmarkaðan hluta umræddrar fræðigreinar. Hér fari kærandi með ósannindi því hann vitni beint í aðra hluta greinarinnar þar sem dregnar séu saman niðurstöður um endurvaktar og falskar minningar. Á grundvelli ummæla í álitsgerð kæranda segi Hæstiréttur í dóminum og sé þar að vísa til þess sem kærandi segi: Hann segir, að sérfrœðingarnir hafi ekki fjallað sérstaklega um þá staðreynd, að minningar umbreytist og litist með tímanum og eigi það ekki síst við um minningar, sem tengdar séu neikvœðum 152 Læknablaðið 2001/87
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.