Læknablaðið - 15.02.2001, Page 77
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ÁLYKTUN STJÓRNAR LÍ
Ályktun stjórnar LÍ
frá 29. desember 2000
Á fundi sínum þann 29. desember síðastliðinn
samþykkti stjórn Læknafélags íslands eftirfarandi
ályktun. Ályktunin var send heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðherra, forseta læknadeildar, læknaráði,
lækningaforstjóra og forstjóra Landspítala -
háskólasjúkrahúss.
„Pann 8. febrúar s.l. sendu stjórnir Læknafélags
Islands og Læknafélags Reykjavíkur frá sér
yfirlýsingu um málefni Landspítalans og
Sjúkrahúss Reykjavíkur. I henni segir m.a.:
„Koma þarf í veg fyrir faglega stöðnun og
einokun á sameinuðu hátæknisjúkrahúsi meðal
annars með tímabundnum ráðningum æðstu
stjórnenda sjúkradeilda. Nýta þarf þetta tækifæri
til að fella hið nýja sjúkrahús að nútímalegum
hugmyndum um hinn akedemíska þátt í rekstri
þess með því að efla tengslin við Háskóla Islands,
þannig að það þjóni landsmönnum sem kennslu-
og rannsóknastofnun jafnt sem sjúkrahús í fremstu
röð.
...Stjórnir Læknafélags Islands og Læknafélags
Reykjavíkur hvetja stjórnvöld til að grípa ekki til
neinna þeirra aðgerða í máli þessu, sem líklegar
eru til að valda afturför eða ólgu og sundurþykkju
meða þeirra, sem málið varðar mest.“
Landspítalinn - háskólasjúkrahús er eina heil-
brigðisstofnunin af sínu tagi hér á landi. Innan
veggja þessarar stofnunar er að finna þekkingu til
greiningar og meðferðar sjúkdóma og til kennslu
heilbrigðisstétta eins og best gerist meðal þjóða á
Vesturlöndum. Landspítalinn - háskólasjúkrahús
ætti því með réttu að teljast háborg heilbrigðis-
þjónustunnar á íslandi. Ein af forsendum þess, að
svo geti orðið, er að þar ríki akademískt frelsi til
hugsunar og tjáningar um þróun heilbrigðis-
þjónustu hér á landi. Það frelsi varðar jafnt
umræður um heilsugæslu utan sjúkrahúsa og
sjúkrahúsþjónustu svo og brotalamir, sem á
þessari þjónustu kunna að vera. Allir starfsmenn
sjúkrahússins ættu að njóta frelsis að þessu leyti.
Það er skoðun stjórnar Læknafélags íslands að lúti
starfsmennirnir óttanum um óvild sjúkrahús-
stjórnarinnar, beri þeir fram óþægilega framtíðar-
sýn frá hennar sjónarhóli, muni það leggja dauða
hönd framtaks- og sinnuleysis á málefni Land-
spítala - háskólasjúkrahúss sem og annarra heil-
brigðisstofnana í landi okkar.
Stjórn Læknafélags Islands hvetur alla hlut-
aðeigandi til að virða þessi sjónarmið lands-
mönnum öllum til hagsbóta og velfarnaðar.“
Atacand Plus
AstraZeneca, 960203 TÖFLUR: C90 DA60 R B (Sérlyfjaskrárlexti)
Hver tafla inniheldur Candesartanum, INN, cílexetíl 16 mg og Hydrochlorothiazidum INN 12,5 mg. Ábendingar: Hár blóðþrýstingur, þegar meðferð með einu lyfi hefur ekki reynst nægjanleg. Skammtar og lyfjagjöf: Fullorðnir: Ráðlagður skammtur
er 1 tafla á dag. Blóðþrýstingslækkandi áhrif nást að mestu innan 4 vikna frá uþþhafi meðferðar. Lyfið á að taka inn einu sinni á dag með eða án matar. Aldraðir: Ekki er nauðsynlegt að breyta skðmmtun lyfsins hjá ðldruðum. Bðrn: Ekki hefur
verið sýnt fram á ðryggi og verkun lyfsins hjá börnum. Skert nýmastarfsemi: Ekki þarf að breyta skðmmtum lyfsins hjá sjúklingum með skerta nýmastarfsemi, sem hafa kreatíninklerans ( 30 ml/mín./1,73 m2 líkamsyfirborðs. Skert lifrarstarfsemi:
Ekki þarf að breyta skðmmtum hjá sjúklingum með væga eða meðalskerta lifrarstarfsemi. Sjúklingar með mjög skerta lifrarstarfsemi og/eða gallteppu eiga ekki að nota lyfið. Frábendingar: Ofnæmi fyrir einhverju af innihaldsefnum lyfsins eða
fyrir súlfónamíðlyfjum (hýdróklórtíazíð er súlfónamiðafleiða). Meðganga og brjóstagjóf (sjá sórkafla). Alvarlega skert nýmastarfsemi (kreatínínklerans < 30 ml/mín./1,73 m2 líkamsyfirborðs). Alvailega skert lifrarstarfsemi og/eða gallteppa. Pvagsýrugigt.
Sérstök varnaðarorð og varúðarreglur við notkun: Nýmaslagæðaþrengsli (renal artery stenosis): rACE hemlar, sem verka á renín-angíótensín-aldósterón kerfið, geta aukið þvagefni f blóði og kreatínín f sermi hjá sjúklingum með slagæðaþrengsli
til beggja nýma eða f nýmaslagæð ef aðeins eitt nýra er til staðar. Búast má við svipuðum áhrifum af vóldum angíótensín II viðtakablokka. Skert blóðrúmmál: Lyf sem hafa áhrif á renin angíótensfn-aldósterón kerfið geta valdið einkennum vegna
lágþrýstings ef sjúklingurinn hefur skert blóðrúmmál eða natríumskort f blóði. Slíkt skal lagfæra áður en byrjað er að nota lyfið. Skert nýrnastarfsemi / nýrnaígræðsla: Þegar lyfið er gefið sjúklingum með skerta nýrnastarfsemi er mælt með því að
fylgst só reglulega með gildum kaliums, kreatíníns og þvagsýru. Engin reynsla liggur fyrir af notkun lyfsins hjá sjúklingum sem nýverið hafa gengist undir nýrnaígræðslu. Ósæðar- og míturlokuþrengsli eða hjartavöðvakvilli með útstreymishindrun
(obstructive hypertrophic cardiomyopathy): Gæta skal sérstakrar varúðar hjá sjúklingum með blóðrennslistruflanir vegna ósæðar- eða míturtokuþrengsla eða hjartavöðvakvilla með útstreymishindrun. Truflanir á saltbúskap: Við notkun þvagræsilyfja
á að fylgjast með sermisgildum salta. Hýdróklórtíazfð getur valdið röskun á vðkva- eða saltjafnvægi, hækkun á kalsíum, lækkun á kalíum, natríum, magnesfum og sýrustigstruflun (hypochloraemic alkalosis). Kalíumlækkun f kjölfar hýdróklórtíazíðs
virðist minni þegar það er notað með candesartan cílexetíli. Með hliðsjón af reynslu af notkun annarra lyfja sem hafa áhrif á renín-angíótensín-aldósterón kerfið, getur samtímis notkun Atacand® Plus og kalíumsparandi þvagræsilyfja, kalíumuppbótar
eða saltuppbótar eða annarra lyfja sem geta aukið kalíumgildi í sermi, leitt til aukningar á kalíummagni í sermi. Áhrif á efnaskipti og innkirtla: Meðferð með tíazíð þvagræsilyfjum getur skert sykurþol. Nauðsynlegt getur verið að breyta skömmtum
sykursýkilyfja, þ.m.t. insúlíns. Sykursýki getur komið í Ijós vegna meðferðar með tíazíði. Hækkuð gildi kólesteróls og þríglýseríða hafa verið tengd þvagræsilyfjum af flokki tíazfða, en 12,5 mg skammtur svo sem í Atacand® Plus hefur lítil áhrif.
Þvagræsilyf af flokki tíazíða auka þéttni þvagsýru í sermi og geta valdið þvagsýrugigtarkasti. Almennt: Sumir sjúklingar eru háðir virkni renín-angíótensín-aldósterón kerfisins (t.d. sjúklingar með alvarlega hjartabilun eða nýmasjúkdóm). Meðferð
með lyfjum, sem hafa áhrif á þetta kerfi, geta valdið bráðri blóðþrýstingslækkun, blóðnituraukningu, þvagþurrð eða jafnvel bráðri nýmabilun. Ekki er hægt að útiloka svipuð áhrif af völdum angíótensín II viðtakablokka. Of mikil lækkun á blóðþrýstingi
getur leitt til kransæðastíflu eða heilablóðfalls hjá sjúklingum með hjartakvilla af völdum blóðþurrðar (ischaemic heart disease) eða æðasjúkdóms í heila (atherosclerotic cerebrovascular disease). Milliverkanlr við önnur lyf og aörar milliverkanlr:
Blóðþrýstingslækkandi áhrif Atacand® Plus geta aukist ef önnur blóðþrýstingslækkandi lyf eru notuð samtfmis. Gera má ráð fyrir að kalíumminnkandi verkun hýdróklórtíazíðs geti aukist af völdum annarra lyfja sem tengjast kalíumtapi og
blóðkalíumlækkun (t.d. önnur þvagræsilyf sem valda kalíumtapi, hægðalyf, amfóterisfn, karbenoxólón og salísýlsýruafleiður). Blóðkalíumlækkun og blóðmagnesíumlækkun af völdum þvagræsingar eykur hættu á eiturverkunum á hjarta af völdum
digitalis glýkósíða og lyfja við hjartsláttartnjflunum. Þegar Atacand® Plus er gefið með slíkum lyfjum er mælt með því að fylgst sé reglulega með kalíumgildum í sermi. Greint hefur verið frá hækkun á litíumþéttni í sermi og auknum eiturverkunum
litíums, sem hvort tveggja gengur til baka, við samtímis notkun litíums og ACE-hemla eða hýdróklórtíazíðs. Því er ráðlagt að fylgst sé náið með litíumgildum í sermi við samtímis notkun lyfjanna. Ðólgueyðandi gigtarlyf (NSAID) minnka þvagræsandi,
natríumlosandi og blóðþrýstingslækkandi verkun hýdróklórtíazíðs. Kólestípól og kólestýramin minnka frásog hýdróklórtíazíðs. Fæðuneysla hefur ekki áhrif á aðgengi lyfsins. Meöganga og brjóstagjöf: Engin reynsla er af notkun lyfsins hjá konum
á meðgöngu en f dýrarannsóknum á candesartan cflexetíli hafa sést nýrnaskemmdir seint á fósturstigi og hjá nýburum. Verkunin er talin verða fyrir tilstilli lyfjafræðilegra áhrifa á renín-angíótensfn-aldósterón kerfið. Nýrnagegnflæði hjá fóstrum
manna, sem er háð þroska renín-angíótensfn-aldósterón kerfisins, hefst á öðrum þriðjungi meðgöngu. Áhættan fyrir fóstur eykst þvf, ef lyfið er gefið á öðrum og þriðja þriðjungi meðgöngu. Hýdróklórtfazfð getur minnkað plasmarúmmál sem og
blóðflæði um leg og fylgju. Það getur einnig valdið blóðflagnafæð hjá nýburum. Byggt á ofannefndum upplýsingum, skal ekki nota lyfið á meðgöngu. Ef kona verður þunguð meðan á meðferð stendur, skal hætta töku lyfsins. Ekki er vitað hvort
candesartan skilst út f brjóstamjólk. Hýdróklórtfazfð skilst út I brjóstamjólk. Vegna hugsanlegrar hættu á aukaverkunum á brjóstmylking, skal hætta brjóstagjöf ef taka lyfsins er talin óhjákvæmileg. Áhrlf á hæfni til aksturs og notkunar véla:
Áhrif lyfsins á hæfni manna til aksturs bifreiða og til stjómunar vinnuvéla hafa ekki verið rannsökuð, en með hliðsjón af lyfhrifum þess er ólíklegt að það hafi nokkur áhrif á þessa hæfni. Við akstur bifreiða og stjórnun vinnuvóla skal hafa í huga að
sjúklingur, sem meðhöndlaður er við háþrýstingi, getur stöku sinnum fundið fyrir sundli eða þreytu. Aukaverkanir: í rannsóknum voru aukaverkanir vægar, gengu fljótt yfir og voru sambærilegar við lyfleysu. Ekkert samband var á milli aukaverkana
annars vegar og aldur eða kyns hins vegar. Algengar (>1%): Almennar: Höfuðverkur, bakverkir, svimi. Öndunarvegur: Sýkingar í öndunarvegi. Sjaldgæfar (0,1%-1%): Hjarta- og æðakerfi: Fyrsta stigs AV-blokk. Meltingarvegur: Uppköst. Einstaka
sinnum veldur meðferð með lyfinu ofsabjúg. Rannsóknaniðurstöður: Lyfið getur aukið þvagsýru, blóðsykur og ALAT (S-GPT) í sermi og einstaka sinnum verður minnkun á blóðrauða og aukning á ASAT (S-GOT) í sermi. Hýdróklórtíazíð veldur
örsjaldan gulu (intrahepatic cholestatic jaundice), brisbólgu, hvitfrumnafæð (leukopenia), hlutleysiskymingafæð (neutropenia)/kymingahrap (agranulocytosis), blóðflagnafæð, vanmyndunarblóðleysi (aplastic anaemia), blóölýsublóðleysi (hemolytic
anaemia), auknu Ijósnæmi, æðabólgu með drepi (necrotising angitis), drepi i húðþekju (toxic epidermal necrolysis), bráðaofnæmi, andnauð (þar á meðal lungnabólga og lungnabjúgur), skertri nýrnastarfsemi og millivefjanýrnabólgu (interstitial
nephritis). Ofskömmtun: Einkenni: Með hliðsjón af verkunarhætti lyfsins má gera ráð fyrir að helstu einkenni ofskömmtunar séu lágþrýstingur og sundl. Ofskömmtun með hýdróklórtíazíði lýsir sór einkum með bráðu vökva- og saltatapi. Einnig
geta sést sundl, lágþrýstingur, þorsti, hraðtaktur, hjartsláttartruflanir frá sleglum, slæving/skert meðvitund og vöðvakrampi. Meðferð: Engar sértækar upplýsingar liggja fyrir um meðferð við ofskömmtun með Atacand® Plus. Eftirfarandi er þó ráðlagt
við ofskómmtun. Þegar það á við er mælt með að uppköst sóu framkölluð og magaskolun beitt. Ef fyrir kemur lágþrýstingur með einkennum skal veita meðhöndlun við þeim og fylgjast með mikilvægustu líkamsstarfsemi. Sjúklingur skal liggja á
bakinu með hærra undir fótum. Ef það nægir ekld, skal auka plasmarúmmál með innrennslislyfi, t.d. saltvatnslausn. Kanna skal salt- og sýrujafnvægi og leiðrétta það, geríst þess þörf. Adrenvirk lyf má gefa ef ofannefnt reynist ófullnægjandi. Ekki
er hægt að fjariægja candesartan með blódskilun. Ekki er vitað I hve miklum mæli er unnt að fjariægja hýdróklórtíazíð með blóðskilun. Pakkningar: 28 stk. (þynnupakkað): 3.640 kr. 98 stk. (þynnupakkað): 10.460 kr.
Umboö á íslandi: Pharmaco hf. AstraZeneca, Hðrgatúni 2, 210 Garðabæ, Simi:535 7152 Fax: 565 7366
Læknablaðið 2001/87 173