Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1952, Page 57

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1952, Page 57
,ÉG ER KONAN ÞÍN, GÍSLI' 47 ]>er trúarleg efni fyrir Iirjósti, en skortir grundvöll, er hann geti treyst. Þetta er næsta einstætt viðfangsefni í Islendingasögunum og hvergi tekið með nærri þvílíkri festu og í þessari sögu, svo að ]>að verður ann- ar af tveim aðalþáttum hennar. III Hinn þátturinn er ástalífs eðlis. Islenzka þjóðin hefur um langt skeið tignað Auði Vésteinsdóttur sem hið fegursta dæmi um ástir og tryggð og hetjudáðir eiginkonu ógæfumannsins. En í þessari sögu er miklu meira fjallað um ástir en við blasir á yfirhorði hennar, og virð- ist flestum hafa sézt yfir þá þættina, sem mestur þunginn livílir á og eru meginþættir sögunnar. Um það verður ekki deilt. að iirlagavaldur sögunnar er hjal þeirra mágkvennanna Auðar og Ásgerðar í dyngjunni, þar sem þær ræddu ástamál sín. ,.Hún (Auðuri stríðir Ásgerði, mágkonu sinni, á Vé- steini, hróður sínum,“ segir Sigurður Guðmundsson i Ágripi af forn- íslenzkri hókmenntasögu og bætir svo við: „Af stríðni Auðar og af- brýði Þorkels gerist i raun réttri Gísla saga,“ og mun í þessum orðum réttilega túlkað hið viðurkennda sjónarmið. En mun ekki nokkuð veikt að orði kveðið, að um stríðni eina liafi verið að ræða í hjali þeirra? Lítum nánar á frásögn sögunnar. Mágkonurnar sitja við sauma, og maður Ásgerðar, Þorkell Súrsson. hlustar á tal þeirra gegnum þil milli eldhúss og kvennadyngjunnar. Ás- gerður biður Auði að sníða skyrtu Þorkeli. Auður svarar: „Það kann eg eigi betur en þú, og mundir þú mig ekki þess biðja, ef þú skyldir gera Vésteini bróður mínum.“ „Eitt er það sér,“ segir Ásgerður, „er tekur til Vésteins; og svo mun mér þykja nokkura stund, og meira ann ég honum en Þorkeli bónda mínum, þótt vér megum aldrei njótast.“ Auður mælti: „Löngu vissi eg það, hvað Þorkeli var um það og hve það fór,’ og ræðum við ekki lengur um.“ „Það þyki mér ekki brígzl,“ segir Asgerður, „þótt mér þyki Vésteinn góður; en heyrði ég hitt sagt, að mjög oft hittust ])ið Þorgrímur, áður ])ú varst gefin heiman.“ Auður mælti: „Þar fvlgdu engir mannlestir, og tók ég engan mann undir Gísla, svo að þar fylgdi ósæmd; og hættum þessu tali.“ Mér þykir nokkuð veikt að orði kveðið, að í orðum þeirra sé um stríðni eina að ræða. Hér er rætl um djúpstæð fjölskyldumál í kven-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.