Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1952, Síða 82

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1952, Síða 82
72 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR og fosfór, og þá farið eftir því hve mikið af þessum efnum fyndist í ösku jurtanna þegar þær voru brenndar. Jurtir sem þurftu mikið kalí voru t. d. þær sem mynduðu rótarhnýði og stöngulhnýði. Fosfat-jurtir, allar tegundir brauðkorns. Köfnunarefnis- og kalkjurtir voru belgjurtirnar, og súlfatjurtir voru svo allar grastegundirnar. Þessi skipting eftir samsetningu öskunnar er þó dálítið vafasöm ræktunarfræðilega séð og ekki sérlega vísindaleg. Skipting jurta eftir vatnsþörf þeirra hefur talsverða hagnýta þýðingu, því vatnið er ekki síður mikilvægt fyrir jurtimar en næringarefnin. Vatnsnotkun sömu jurta- tegundar getur þó verið mjög breytileg og fer meðal annars eftir því hvort öðrum vaxtarskilyrðum er fullnægt eða ekki. Notkun tilbúins áburðar getur t. d. haft mjög lítil áhrif til að auka afraksturinn, ef jurtina skortir vatn. Nytjajurtum hefur verið skipt í 9 flokka eftir því hvað hentugt er að rakastig jarð- vegsins sé við ræktun þeirra. Sumar korntegundir þurfa t. d. rakastigið 30%, aðrar meira. Garðjurtir 60—70%. Engjagras og belgjurtir 90%. En af hverju ákveðst þá mismunandi vatnsþörf jurtanna? Jurtfrnar þurfa mest vatn á vaxtarskeiði sínu þegar ný blöð og nýir sprotar eru að myndast. Jurtir sem hafa stutt vaxtarskeið gera minni kröfur til raka jarðvegsins, geta látið sér nægja 10—20% rakastig t. d. sum snemmþroska fóðurgrös. Jurtir með breið og stór blöð eins og ýmsar belgjurtir þurfa mikið vatn. Fjölæru grasjurtimar þurfa mest vatn allra jurta. Vatnsþörf jurtanna er auðvitað í beinu hlutfalli við uppgufunina. Því meiri sem uppgufunin er, þeim mun meiri er vatnsþörfin. Þéttur vöxtur eins og t. d. hjá hör minnkar útgufunina. Stór blöð þýða mikla útgufun. Gerð jurtanna og útlit fer því oft eftir því hvernig lífsstarfsemi þeirra er háttað. Tökum t. d. ertur og ýmsar jurtir sem mynda olíu í fræjunum. Þær hafa stórt yfirborð blaða og uppgufunin er því mikil og vatnsþörfin mikil. Þetta stendur í sambandi við mikla brennslu eða orkueyðslu við myndun fitu og eggjahvítuefna. Þessar jurtir eyða mestum hluta af kolvetnum sínum til þess að mynda eggjahvítuefni og fitu; við það myndast mikill hiti og þess- vegna þarf mikla uppgufun til kælingar. Frjósemi jarSvegs, áburður og sáðskipti Það er gömul reynsla að akur, sem sáð er í ár eftir ár, hættir að lokum að gefa góða uppskeru. Menn fundu snemma upp þá aðferð að hvíla akurinn, láta hann liggja ósáinn nokkurn tíma, helzt nokkur ár og einnig að nota sáðskipti, breyta um ræktarjurtir frá ári til árs. Þessar aðferðir báru nokkurn árangur, en frjósemi jarð- vegsins virtist þó fara minnkandi með tímanum. Þjóðverjinn Justus von Liebig uppgötvaði að jurtirnar nota ólífræn sölt úr jarð- veginum sér til næringar. Liebig og fylgjendur hans héldu að nú væri gátan ráðin: Við hverja uppskeru tökum við efni frá jörðinni og þessi efni verður hún að fá aftur til að halda frjósemi sinni. Auðvitað er nokkuð rétt í þeSsu, þótt það sé ekki allur sannleikurinn. Það hjálpar stundum að bera á ólífræn efnasambönd af köfnunarefni, fosfór og kalíum, en það nægir ekki alltaf og jafnvel sáðskipti og plöntun belgjurta, sem safna köfnunarefni í jarðveginn nægir heldur ekki til að uppskeran verði jöfn og stöðug, hvað þá vaxandi.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.