Tímarit Máls og menningar - 01.03.1952, Page 85
JARÐVEGUR OG RÆKTUN
75
strúktúrlausum jarðvegi. Þetta vatn leitar undan hallanum, en það seitlar hægt
vegna mótstöðu jarðvegsins. Jarðvegur sem hefur rétta byggingu getur því tekið á
móti öllu vatni sem myndast við það að klakinn þiðnar í jörðinni á vorin og einnig
snjóalögum. Vatnið getur nú sigið niður, en safnast ekki í tjarnir á yfirborðinu. En
hver er munurinn við uppgufun? Hann er einnig mikill. Kögglamir í efsta laginu
missa að vísu fljótt allt vatn úr hárpípum sínum við uppgufun, en hér er sú hreyfing
rofin vegna byggingar jarðvegsins.
Uppstreymið nær ekki nema til efsta lagsins. Og þetta lag verkar síðan sem ein-
angrun. Kornótti jarðvegurinn, strúktúr-jarðvegurinn, getur tekið á móti hérumbil
85% af heildarúrkomunni, en 15% gufar upp.
I jarðvegi sem þannig er gerður eru skilyrði fyrir jurtirnar mjög góð. Raki og
næringarefni eru til staðar samtímis og stöðugt, en eru ekki háð neinum verulegum
sveiflum.
A yfirborði jarðvegskögglanna geta loftkærar bakteríur starfað og næringarefni
myndazt úr lífrænum efnum. I innra hluta kögglanna er sundurgreiningin aftur á
móti loftfælin vegna þess að súrefnið eyðist á yfirborði þeirra.
Rotnunin í svona jarðvegi er tiltölulega hæg og jöfn, öfugt við það sem á sér stað
í strúktúrlausum jarðvegi, þar sem allt lífrænt efni breytist í ólífræn sambönd á
skömmum tíma þegar jarðvegurinn þornar. Moldarkögglarnir verða þannig eins-
konar sparisjóður jarðvegsins.
Vatnsmiðlun skóganna
Lítum snöggvast á þýðingu skóganna fyrir jarðveginn. Loftslagið í skóglendi er
alltaf tiltölulega rakt, svo að sumir hafa haldið að úrkomur væru jafnan meiri yfir
skógum en annarsstaðar. Þetta er alveg rangt. En vegna hins stóra yfirborðs lauf-
króna trjánna verður uppgufun mjög mikil. Það hefur verið sýnt fram á að 25% af
úrkomunni gufar upp frá trjákrónunum en 75% ná til jarðar. Þar sem ekki er skóg-
ur nær allt regn til jarðar. I skógarbotninum er mikið af dauðum blöðum og hálf-
rotnuðu efni, sem sogar í sig vatn. Vatnið sígur svo hægt og hægt niður hlíðarnar í
gegnum jarðveginn og heldur honum rökum. Sumt nær niður í jarðvegsgrunninn og
berst hægt gegnum hann til fljótanna.
Þar sem skóglaust er og strúktúrlaus jarðvegur kemur oft fyrir að vatnið rennur í
stríðum straumum og myndar flóð sem valda eyðileggingu. Þetta er einkum títt í
miklum vorleysingum. En skógurinn temprar vatnsrennslið og heldur jarðveginum
jafnrökum og vatnsmagni fljótanna jöfnu.
Meira um eðlisfræði jarðvegsins. Jarðvegsræktun
Eins og oft var tekið fram hér á undan er sagt að jarðvegurinn eða gróðurmoldin
hafi byggingu þegar hið ræktaða lag samanstendur af misstórum aðgreindum köggl-
um, sem hvíla á undirlagi, sem er byggingarlaust. 011 jarðvegsræktun er í því fólgin
að skapa þessa gerð jarðvegs og halda henni við. Plæging og herfing verður t. d. að
framkvæmast þannig að sem minnst myndist af örsmárri mylsnu. Ef við hugsum okk-
ui jarðveg sem að 65 hundraðshlutum er komóttur og að 35 hundraðshlutum salli, þá