Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1952, Side 97

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1952, Side 97
ANNÁLL ERLENDRA TÍÐINDA 87 Stalín: Það er rétt, að vér gerðum tilraun með að sprengja eina af tegundum kjarnorkusprengjunnar. I framtíðinni munu einnig verða gerðar kjarnorku- sprengjutilraunir af ýmsum stærðum, í þeim tilgangi að verja land vort gegn á- rásum ensk-ameríska árásarbandalagsins. Pravda: Ymsir málsmetandi menn í Bandaríkjunum gerðu mikið hark út af kjamorkutilrauninni og kölluðu ógnun við öryggi Bandaríkjanna. Er nokkur ástæða til slíks ótta? Stalín: Það er engin ástæða til slíks ótta. Málsmetandi menn Bandaríkjanna hljóta að vita, að Ráðstjórnarríkin eru ekki aðeins mótfallin notkun kjarn- orkuvopna, heldur vilja þau einnig banna þau og hætta framleiðslu þeirra. Það er kunnugt, að Ráðstjórnarríkin hafa mörgum sinnum krafizt þess, að kjarnorkuvopn yrðu bönnuð, en hverju sinni hefur því verið hafnað af Atlanzhafsbandalaginu. Þetta þýðir, að valdhafar í Bandaríkjunum munu beita kjarnorkuvopninu ef svo kynni að fara, að Bandaríkin réðust á land vort. Það var einmitt vegna þessa, að Ráðstjórnarríkin neyddust til að afla sér kjamorkuvopna til þess að geta tekið móti árásarmönnunum vel vopnum búin. Auðvitað mundu árásarmennimir vilja það helzt, að Ráðstjómarríkin væm vopnlaus ef til árásar kæmi, en Ráðstjómam'kin em ekki á sama máli, og telja, að mæta verði andstæðingunum fúllbúin til vígs. Því er það, að ef Bandaríkin hafa ekki í hyggju að ráða á Ráðstjórnarríkin, þá verður að telja ótta málsmetandi manna Bandaríkjanna ástæðulausan, því að Ráð- stjómarríkin hafa ekki í hyggju að ráða á Bandaríkin né nokkurt annað land. Málsmetandi mönnum Bandaríkjanna þykir það leitt, að Bandaríkin búa ekki ein að kjarnorkuleyndarmálinu, heldur einnig önnur lönd, Ráðstjómarríkin fyrst og fremst. Þeir væru því fegnastir, að Bandaríkin hefðu einokun á framleiðslu kjarnorkusprengjunnar. Þeir væm því fegnastir, að Bandaríkin hefðu ótakmark- aðan kost á því að hræða og beygja önnur lönd. En hvaða ástæðu hafa þeir, þeg- ar öllu er á botninn hvolft, til að mæla svo? Og hvaða rétt? Getur það verið, að það sé til varðveizlu friðarins, að menn eiga slíkt einkaleyfi, eða mundi það ekki vera sannleikanum samkvæmara, að varðveizla friðarins krefst þess fyrst og fremst, að slík einokun sé afnumin og síðan séu kjamokuvopnin bönnuð skilyrðislaust? Ég hygg, að fylgismenn kjamorkusprengjunnar muni þá fyrst sættast á að banna hana þegar þeir sjá, að þeir hafa ekki einokun á henni. Pravda: Hver er skoðun yðar á alþjóðlegu eftirliti með kjamorkuvopnum? Stalín: Ráðstjómarríkin em þess fýsandi, að kjamorkuvopn verði bönnuð og hætt verði framleiðslu kjarnorkusprengja. Ráðstjómarríkin em því meðmælt, að komið verði á alþjóðlegu eftirliti til að tryggja það, að framkvæmd verði sam- vizkusamlega ákvörðunin um bann við kjarnorkuvopnum og stöðvun á framleiðslu þeirra, en þær kjarnorkusprengjur, sem þegar em til, verði eingöngu notaðar til friðsamlegra starfa. Ráðstjómarríkin em meðmælt slíku alþjóðlegu eftirliti. Málsmetandi menn í Bandaríkjunum tala einnig um eftirlit, en eftirlit þeirra grundvallast ekki á stöðvun framleiðslu á kjamorkuvopnum, heldur á áframhald- andi framleiðslu, og raunar í svo ríkum mæli, er samsvarar því hráefnamagni, sem
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.