Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1952, Page 103

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1952, Page 103
ANNÁLLERLENDRA TÍÐINDA 93 sumri var ekki lengur hægt að hemja egypzku þjóðina. Hún krafðist brottfarar Bretahers og innlimunar Súdanhéraðs í Egyptaland. Wafdistaflokkurinn sem hef- ur meirhluta á þingi gat ekki lengur daufheyrzt við kröfum alþýðunnar, og 15. okt. 1951 sagði þingið upp báðum brezk-egypzku sáttmálunum, um Súezsvæðið og samstjóm í Súdan. Það var nú ljóst, að Bretar fengu ekki einir komið neinu tauti við Egypta. Nokkru síðar lögðu fjögur ríki Atlanzhafsbandalagsins, Bandaríkin, Bretland, Frakkland og Tyrkland, áætlun fyrir egypzku stjómina um þátttöku í „Herstjóm Miðausturlanda". Egyptaland skyldi nú skipa sinn sess í heimshernaðarbandalag- inu gegn Ráðstjómarríkjunum. En stjómin hafnaði þessu. Bmtust þá út óeirðir í Kaíró og fleiri borgum, Bretar sendu út flugumenn til að fá tækifæri til að taka Egyptum blóð, og hinir innfæddu fengu nú smjörþefinn af því hvað það kostar að hafa land sitt hernumið af erlendum her. Farouk konungur vék Nahas Pasha frá völdum í lok janúar 1952 og hefur snú- izt gegn sjálfstæðishreyfingu landsins. Innlend og erlend vopn eru nú borin á hina marghrjáðu alþýðu Egyptalands, en um það er ekki að villast, að úr þessu verður þjóðin ekki svæfð né barin aftur til hlýðni. Egyptar em vaknaðir, og þeir eru reiðir. Annáll erlendra tíðinda JanúaT—marz 1952 I Áramótareikningur kalda stríðsins Árið 1951 er ár mikilla viðburða og stórtíðinda. Annállinn hefur oft gert að umræðuefni hið kalda stríð, er Bandaríkin hafa hrundið af stokkunum eftir lok hinnar síðari heimsstyrjaldar. Það virðist ekki úr vegi að gera upp hinn pólitíska ársreikning þessa stríðs, þegar hið nýja ár ríður í garð. Þess skal þá fyrst getið, sem markverðast er: 725 milljónir fullvaxinna manna hafa skrifað undir kröfuna um frið og samkomulag með hinum fimm stórveldum heims- ins. Áratugum saman hafa friðarhreyfingar starfað í heiminum, en aldrei fyrr í sögunni hefur tekizt að sameina slíkan fjölda manna undir eitt merki sem í dag. Árangur friðarhreyfingarinnar hefur átt meiri þátt í að afstýra heimsstríði en flesta fær grunað. Hinn nafnlausi múgur, sem valdhafamir fyrirlíta, hefur lagt sitt þunga lóð á vogarskálamar, og sannað það með undirskrift sinni, að orð hans og athöfn eru þyngst á metunum þegar öllu er á botninn hvolft. Það er þessum múg að þakka, að vér höfum enn frið á jörð.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.