Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1952, Side 114

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1952, Side 114
t UMSAGNIR UM BÆKUR V_______________________________________________y Jóhannes úr Kötlum: Dauðsmannsey. Siglingin mikla. Frelsisálian. Heimskríngla 1949—1951. 1 Það er spauglaust fyrir einn auman rit- dómara að fá upp í lúkurnar bók eins og Dauðsmannsey Jóhannesar úr Kötlum. Hann byrjar á lestrinum, og innan skamms veit hann ekki sitt rjúkandi ráð. Mvað á þetta eiginlega að vera? Á það að vera raunhæf mynd af íslenzku sveitalífi? Eða á það að vera einhvers konar táknmynd, sem ber að skilja ann- arlegum skilningi? Ellegar er þetta bara Teyfari af vogaðasta tagi? Eru þetta mannlegar persónur, gripnar úr raun- verulegu lífi, eða eru það blind og ótam- in náttúruöfl, klædd í mannleg gervi? t>að gagnar auðvitað lítið að spyrja eða hefja upp kveinstafi — ekkert af því hrín á höfundinum. Mitt er að yrkja, ykkar fáráðlinganna að skilja. Annarar líknar er ekki af honum að vænta. Margt í þessari bók er með allmiklum ólíkindum, vægast sagt. Eitthvað er hún skrýtin samkundan hjá hreppstjóranum í stórabænum í 4. kapítula, þar sem Ó- feigur Snorrason, auknefndur grallari, liggur undir ákæru yfirvaldanna fyrir kvennafar og aðra ósiðsemi. Þá eru ekki síður furðuleg viðskipti þeirra Jóns hreppstjóra og galdramannsins af Ströndum norðan. Eða þá heimsókn Samsonar Jasonarsonar trúboða frá Jútu á bæ Ófeigs, háttalag hans allt og sam- skipti við Guddu vinnukonu. Og fleiri dæmi mætti nefna í svipuðum dúr, þótt hér verði staðar numið. Aðalpersóna og burðarás þessarar sögu er bóndinn í litlabænum á Illvita, áðurnefndur Ófeigur Snorrason Sæ- mundssonar hins sterka, gulur á hár og skegg og hörundslit, jafnvel með gular glærur í augunum, þunnnefjaður, höku- mjór. Ófeigur þessi er kynlegur fugl, völundur að hagleik, hagyrðingur til sveitarbrúks, hestamaður, vitlaus í brennivín og kvenfólk, höfðingjadjarfur orðhákur, uppreistargjarn í eðli, stór í lund, en lítill búmaður og safnar ekki veraldarauði. „Eg vil lifa á meðan eg lif>“, segir Ófeigur. „Heimurinn er ekki vanur að dekstra mann, drengur minn, og því hef eg æfinlega lagt í vana minn að nota tækifærið út í æsar, augnablikið er í rauninni það eina líf, hitt er ekki neitt. . . . Það fullkomna varir sjaldan nema örskotsstund, þess vegna getur augnablikið verið heilli eilífð dýrmætara. Fólk biður um lukku, meira að segja æ- varandi lukku, það heldur að lukkan standi stöðug, annar eins spólurokkur og heimurinn er. Og þegar svo á að höndla hana grípur það í tómt“ - „Þú skalt aldr- ei súta hvað um þig er sagt, þeir sem eru sjálfum sér trúir eru oft níddir og of- sóttir hvað mest. En það gerir ekkert tii, jafnvel þó þú sért dæmdur í tukthús eða hengdur gerir það ekkert til ef þú
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.