Tímarit Máls og menningar - 01.12.1953, Blaðsíða 135
ÞJÓÐIR OG TUNGUMÁL
245
enska mállýzku, en áður hollenzka mállýzku, er nefnist afrikaans.
Eins og kunnugt er ráða hvítir menn löndum þessum og tala flestir
móðurmál sín. Ekki er með öllu ljóst, hversu fjölmennar þessar frum-
byggjaþjóðir eru, en sumum fræðimönnum telst svo til, að þær séu
samtals ekki nema um 100 millj. manna, enda eru löndin víða strjál-
byggð.
Okkur hættir mjög til að líta niður á frumbyggja Afríku og telja þá
eintóma villimenn. Sannleikurinn er þó sá, að meðal þeirra eru ýmsar
merkilegar menningarþjóðir. Meira að segja er talið, að gulur eyði-
merkursandurinn í Sahara-eyðimörkinni, sem er heimkynni nyrðri
þjóðanna af Súdan-flokknum, hylji fornar menningarborgir, og víst er
um það, að meðal innfæddra á Gullströndinni norðan Guíneuflóa lifa
miklar menjar um forna menningu og blómaskeið, þótt þeir hafi orðið
undir í samkeppninni við hvíta bróður, sem hefur á stundum beitt þá
nokkurri harðneskju og verið skilningssljór á annarra menningu en
sína eigin, ekki verið mjög bróðurlegur.
Bæði Súdan-tungum og bantú-tungum er skipt í ýmsa undirflokka,
mismunandi skylda innbyrðis, og franski málfræðingurinn Delafosse
segir, að þessar tungur séu alls 455 að tölu, en aðrir halda fram, að
þetta sé of há tala og sumt séu þetta aðeins má'lýzkur. Annars verður
að segja hverja sögu eins og hún gengur, að nijóg erfitt er að fá skýra
hugmynd um byggingu þessara tungna og þennan málaflokk yfirleitt,
vegna skorts á heimildum til yfirlits. A. m. k. eitt tökuorð úr þessum
tungum hefur komizt inn í íslenzku. Það er samba, heiti á dansi. Leið
orðsins hefur verið töluvert krókótt, en það hefur sarnt haldið upp-
runamynd sinni. Brasilíumenn tóku það upp eftir svörtum þrælum frá
Afríku, og frá Brasilíu hefur það breiðzt út um aðra hluta Ameríku og
til Evrópu.
Fjölmennasta þjóð Súdanmanna mun vera Haussa, um 13 millj., en
annars éru bantú-málin þekktari en Súdan-málin. Meðal bantú-tungn-
anna er swahili, sem töluð er af um 8 millj. manna, þ. á m. Kíkújú-
mönnum.
Annars eru þessar tungur margar og mismunandi, og samheiti þeirra,
baritú, er frá þeim runnið og merkir raunar fólk, það er til í ýmsum
mvndum í þessum málum, bantu, wantu, watu o. fl.
Við getum litið á swahili sem heppilegt sýnishorn þessara tungna.