Tímarit Máls og menningar - 01.12.1953, Blaðsíða 33
'GUÐ HJÁLPI ÍSLENDINGUM
143
afhent útlendu herveldi undir herstöðvar og hersetu. Þetta voru kallað-
ar hervarnir. Varnir gegn hverjum andskotanum? Því var logið að okk-
ur, að það væru varnir gegn Rússum.
Nú er margan farið að gruna, að þessu hafi verið logið í okkur.
Herstöðvarnar hér á landi voru aldrei hugsaðar okkur til varnar. Þær
voru frá upphafi hugsaðar árásarhreiður á ákveðið land.
Hvað hefur okkur orðið á?
Við höfum afhent útlendu herveldi land okkar til árásarstyrjaldar á
þjóð, sem í allri sögu sinni hefur aldrei gert neitt á hluta okkar, annað
■en það að koma upp hjá sér sósíalistisku þjóðskipulagi.
Þetta er versta slys, sem veslings Island hefur hent. Það er meira.
Það er versti glæpur, sem ísland hefur framið, og sá slóði, sem hann
■dregur á eftir sér, verður þungur og feiknlegur, ef það tækist að
hleypa styrjöldinni af stokkunum. Guð hjálpi þá íslandi! Guð hjálpi þá
þeim, sem valdir eru að þessu! Guð hjálpi þá hverju mannsbarni á
þessu landi!
En það er engin hætta á, að hann hjálpi. Hann sendir sem fyrri dag-
ínn sinn gamla og trúa þjón, monsér Lögmálsgæti orsaka og afleiðinga
til þess að kenna okkur.
Ég las nýlega stutta grein í íslenzku blaði. Efni hennar var þetta:
Mennirnir, sem standa að Mír hér á landi ganga sömu erinda og dindl-
arnir, sem löggra fyrir Bandaríkjunum. Þeir eru tvær greinar á sama
stofni. Og þó að ótrúlegt sé, þá kom þetta í máltóli, sem þykist vinna á
móti herstöðvum á Islandi. Það heldur, að þetta sé vegurinn til að fá
þjóðina til að rísa gegn „vernd“ Bandaríkjanna, að hræða hana með
Rússum. Þetta eru svipuð vinnubrögð og að losa sig við vissa vökva
líkamans með því að spræna þeim ofan í sig.
Sú sannfæring hefur aldrei vikið úr huga mér í hálfan fjórða áratug,
að við eigum að hafa náin menningarviðskipti við allar þjóðir, hvort
sem þær búa í austri eða vestri eða suðri, jafnvel í norðri. Þá reis
menning okkar hæst, þegar íslendingar fóru víðast og lærðu af flestum.
Og þetta hafa Islendingar skilið og stofnað til menningartengsla við
ýms lönd.
Við höfum hér félagsskap, sem heldur uppi menningartengslum við
Norðurlönd, þrátt fyrir það, að það var afbrot Norðmanna og Dana,
að við lifðum undir erlendri kúgun í meira en sjö aldir. Við höfum fé-