Tímarit Máls og menningar - 01.12.1953, Blaðsíða 3
TIMARIT
MÁLS OG MENNINGAR
RITSTJÓRAR
KrISTIA'N E. Anurésson oc Jakob Benediktsson
Dcs. 1953 14. árgangur 3.—3. hefti
Xll verkefni Nltíls og menningar
Utgáfu tímaritsins hefur seinkað vegna þess að önnur verkefni hafa kallað brýnna
að fyrir Mál og menningu.
Nýi kjörbókaflokkurinn
I fyrsta lagi varð prentun bókaflokksins að ganga fyrir, en þar eru eins og í fvrra
níu bækur á ferð, sem margar urðu tímafrekar í prentun vegna þess hve til þeirra
er vandað, m. a. með skreytingu og myndum og stílfögru bandi.
Þetta er annað árið sem Mál og menning gerir tilraun með hið nýja fyrirkomulag
sem gefur félagsmönnum kost á stórum aukinni útgáfu og frjálsu vali um bækumar.
Hefur stjórn félagsins lagt sig fram að velja í flokkinn sem fjölbreyttastar bækur
er séu um leið auðlesnar og skemmtilegar og þær beztu sem völ er á í hverri grein.
Hér fara saman stórmerk frumsamin rit um Islandssögu (Islenzka þjóðveldið, Vest-
lendingar), íslenzk og erlend skáldrit, ljóðaþýðingar „handan um höf“, forn írsk
æfintýri og alþýðleg fræðirit til skemmtunar og menntunar. Hér geta menn valið
um hvort þeir vilja heldur skáldsögu með nýtízkusniði eftir ungan Reykvíking,
Agnar Þórðarson, eða sögu eftir hinn þjóðkunna bónda og rithöfund, Eyjólf Guð-
mundsson á Hvoli. Með bókum eins og Talað viS dýrin, Chaplin og félagsbókinni
Hajinu og huldum lendum er verið að gefa íslenzkum lesendum beztu fræðibækum-
ar sem út hafa komið síðustu árin, bækur sem sameina að vera skemmtilegar, snilld-
arvel ritaðar og auðlesnar, og hafa þær líka verið metsölubækur erlendis.
Mál og menning er með þessari auknu útgáfu að leggja íslendingum upp í hendur
tækifæri bæði til að halda vakandi þeirri menningu sem hefur allar aldir verið líf-
taug þjóðarinnar og til að halda áfram sköpun nýrrar menningar og listar með því
að efla rithöfunda, ung skáld og fræðimenn til að semja ný verk handa alþýðu. Mál
og menning lítur á þessa nýju útgáfu sem skyldustarf við þjóðina á hættutímum til
að vernda inenningu hennar, sögulegan skilning, ástina á bókmenntum, sjálfstæði
og andlegan þroska.
Þessvegna hejur aldrei áSur reynt eins og nú á skilning og vakandi starj umboðs-
Tímarit Máls og menningar, 2.—3. h. 1953 8