Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1953, Blaðsíða 160

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1953, Blaðsíða 160
270 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR j)eir komu til leiðar, birtir sýnishorn af ritsmíðum þeirra og gerir grein fyrir áhugamálum þeirra og skoðunum. I fyrsta þætti bókarinnar, Vormenn vestanlands, segir frá sr. Olafi og liðs- mönnum hans í Vestfirðingafjórðungi, og er þar gerð nokkur grein fyrir því um- hverfi sem þessir menn eru vaxnir upp úr. Eins og höfundur bendir á er sr. Ólaf- ur einmitt alinn upp á næsta bæ við Jón Egilsson sem áður var nefndur, og síðar varð Brynjólfur Benedictsen einn helzti samherji sr. Ólafs, en faðir Brynjólfs var Bogi Benediktsson, sá er samdi Sýslu- mannaævir, sonarsonur Boga í Hrapps- ey sem lengstaf átti og rak Hrappseyjar- prentsmiðju. Þessi og önnur persónu- tengsl henda í áttina til fræðslustefnu 18. aldar, og þau tengsl eru bersýnilega veigamikill þáttur í allri starfsemi þeirra Flateyinga. Enda kemur það ljóst fram í frásögn Lúðvíks Kristjánssonar að Tómas Sæmundsson var sá Fjölnismanna sem mest áhrifin hafði á þá, og er það ■eðlilegt, því að hjá honum hafa þeir einmitt fundið greinilegastan skyldleik- ann. Annar þáttur bókarinnar snýst um Framfarastofnunina í Flatey og hinn þriðji um Bréflega félagið sem var beint frá henni runnið, en að hvorutveggja var Ólafur Sívertsen upphafsmaður, og í f jórða þætti er sagt frá ársritunum tveim- ur, Gesti Vestfirðingi og Ársriti presta í Þórsnesþingi. Gestur Vestfirðingur var gefinn út af Bréflega félaginu, en Ársrit prestanna varð til fyrir atbeina Péturs Péturssonar, síðar biskups, en vafalaust fyrir áhrif frá starfsemi Flateyinga að mjög verulegu leyti. I þessum þáttum ber margt á góma sem ekki verður rakið hér. I kaflanum um Framfarastofnunina er m. a. mjög fróðlegt yfirlit um elztu lestrarfélög á íslandi, og væri æskilegt ef fróðir menn í ýmsum héruðum gætu bætt þar ein- hverju við, því að heimildir um þau eru næsta gloppóttar, og vera má að einhver vitneskja um þau leynist enn manna á meðal, þó að ekki sé hún aðgengileg í söfnum. Um Framfarastofnunina eru aftur á móti til góðar heimildir í safni hennar, og er það ýtarlega rakið í bók- inni. Þó að blómaskeið hennar tæki skjótan enda þegar sr. Ólafur féll frá, er saga hennar um margt hin merkileg- asta, og bein og óbein áhrif hennar ná miklu víðar en margan grunar. Ófáir ís- lenzkir merkismenn á síðari hluta 19. aldar áttu rætur sínar í þeim jarðvegi menningarvakningar sem skapaðist fyrir atbeina þeirra manna sem þarna er frá sagt, og sumir voru beinlínis styrktir af þeim til mennta. Nægir þar að nefna menn eins og Matthías Jochumsson, Guð- brand Vigfússon, Björn Jónsson ráð- herra. Enn fremur má ekki gleyma því að í Flatey fékk Gísli Konráðsson skjól síðustu æviárin, og á þann hátt björg- uðust öll handrit hans, sem hefðu annars átt á hættu að komast á flæking. Ekki er heldur ófróðlegt að kynnast sjónarmiðum og umbótatillögum Breið- firðinga, sem birt eru í sýnishomum úr ritgerðum þeirra úr söfnum Bréflega fé- lagsins. Margar þeirra bera vott um mikinn stórhug og bjartsýni, eins og sjá má af því að sumar tillögurnar komust ekki í framkvæmd fyrr en áratugum síðar, jafnvel ekki fyrr en á allra síðustu árum, eins og hugmyndir þeirra um sjúkrasjóði og almennar tryggingar. Það kemur fram hjá höfundi að ein meginorsök þess að Vestfirðingafjórð- ungur stóð svo framarlega í menningar- málum um þessar mundir hafi verið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.