Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1959, Síða 54

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1959, Síða 54
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR þátt Búasonar, Göngu-Hróljs sögu, Þorsteins þátt uxajóts, Ragnars sögu loðbrókar, Ásmundar sögu kappa- bana, Sörla sögu sterka, Olafs sögu helga og enn fleiri sögur. í kvæði einu, sem heitir Einars tættir, er dauða Kjartans Olafssonar minnzt með þessum orðum: Deyður er Kjartan Ólavsson, hann liggur í d0kkri j0rð. Enn er ótalin sú saga, sem átti ekki hvað sízt erindi til þessarar frænd- þjóðar vorrar, en það er Fœreyinga saga, sem virðist hafa verið rituð snemma á 13. öld, og vitanlega komst hún til Færeyja, þar sem hún varð rímurum að yrkisefni. Þau einkunnarorð, sem ég hef valið þessari grein, eru tekin úr kvæðinu Tröllin í Hornalöndum, og segja þau langa sögu í fám orðum. Frá íslandi bárust fræði til Færeyja og annarra nágrannalanda allt frá 12. öld. Fræði og sögur urðu ein af útflutningsvör- um íslendinga, eins og verið hafði unr dróttkvæði frá því á 10. öld. Ég hef þegar gefið í skyn, hverjar orsak- ir lágu upphaflega til þess, að Islend- ingar urðu eins konar sagnaritarar Norður-Evrópu á 12. öld. Snemma á þeirri öld komst það í tízku á íslandi, að sögur um fornaldarhetjur voru samdar og síðan lesnar upp til skemmtunar áheyrendum. Þessi siður berst til norsku hirðarinnar. En ís- lendingar liöfðu á þeirri öld ritað einnig um nærtækari sögu Norður- landa. Hinn forni sagnafróðleikur, sem fyrr hafði einkum verið skálda- eign, varð hrátt almennur á íslandi, og nágrannaþjóðir vorar nutu hans fyrst að marki, er sögurnar höfðu ver- ið færðar í letur. Segja má, að upptök íslenzkrar sagnaritunar séu margþætt. Ef vér kynnum oss rækilega íslenzkar mennt- ir á fyrri hluta 12. aldar, verða þau ljósari oss. Vitanlega höfðu íslend- ingar eins og aðrar þjóðir á svipuðu menningarstigi gnótt sagna, sem gengu í munnmælum. En til þess að slíkar sögur verði skráðar, þarf geysi- mikið átak, sem fáar þjóðir hafa leyst af hendi og engin jafnvel og íslend- ingar. Hinar íslenzku fornsögur virð- ast hafa verið samdar og ritaðar eink- um í því skyni að skemmta mönnum. Þær eru sprottnar af félagslegri nauð- syn. Við upphaf 12. aldar varð margt til þess að stuðla að því, að svo gæti orðið. Jón Ogmundsson Hólabiskup (1106—1121) barðist gegn einhverri vinsælustu skemmtun þjóðarinnar, dansi og danskvæðum. Það þarf ekki mikið hugmyndaflug til að láta sér koma til hugar, að Jón helgi hafi kennt mönnum að nota helgra manna sögur til skemmtunar í heimahúsum í stað dansanna. A dögum lians hafa margar slíkar sögur verið til á ís- lenzku. Enn eru til ýmsar sögur af helgum mönnum, og voru þýddar á 12. öld eða fyrr. Flestar þeirra virð- 148
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.