Tímarit Máls og menningar - 01.09.1959, Blaðsíða 78
NICOLAS GUILLEN
Kúba 1959
Nicolas Guillen er frægasta skáld Kúbumanna, og hefur löngum lifað í útlegð
— þar til á þessu ári. Meðal Ijóða hans má nefna: W est Indies Ltd., 1934;
Cantos para soldados y sones para turistas, 1937; Elegía a Jacques Roumain,
Elegía a Jesús Menéndes, 1951.
Saga lýðveldis vors er stutt, sem
dropi í tímans hafi: varla meira
en hálfrar aldar, en hún hefur verið
auðug að óeirðum og stjórnarbylt-
ingum. Mér eru í óljósu barnsminni
„skærurnar í ágúst“ (1906) sem
frjálslyndir menn hleyptu af stað
gegn forsetanum, Estrada Palma.
Don Thomas — eins og hann var
kallaður af alþýðu manna — hafði
hug á að halda þeim völdum sem
hann hafði fengið í hendur árið 1902
eftir brottför Bandaríkjamanna.
Óvinir hans beittu sér gegn því. Stríð-
ið brauzt því út, eins og það hefði
gert í sérhverju rómönsku landi í
Ameríku. Þegar Estrada Palma stóð
andspænis vopnaðri þjóð sinni, bað
hann um íhlutun Bandaríkjamanna,
í samræmi við Platt-samninginn. Sjó-
liðarnir gengu á land, uppreisnar-
menn lögðu niður vopnin og það var
efnt til nýrra kosninga. Nýr forseti
var útnefndur: Gomez, hershöfðingi
úr Sjálfstæðisstríðinu,* stríðinu gegn
Spáni, stríði sem McKinley forseti
hafði bundið enda á árið 1898.
I stjórnartíð Gornez urðu samt aft-
ur uppþot, og stríð. Það var stríð sem
fáir minnast: „kynþáttastríðið“ svo-
nefnda, sem tveir forkólfar svertingja
glæddu í maí 1912. Þessir foringjar,
Estenoz og Ivonet, kröfðust ekki að-
eins bættra lífsskilyrða handa kyn-
þætti sínum, heldur handa fátækum
mönnum, hvaða litar sem þeir væru.
Á fáeinum dögum kæfði Gomez upp-
reisn þessa í hlóði. Eftirmaður hans
var Menocal, annar harðstjóri til,
annar Sjálfstæðisstríðsforingi til,
stórvinur og þjónn Bandaríkjamanna,
og var reyndar uppalinn í skólum
þeirra. I stjórnartíð hans áttust við
frjálslyndir og íhaldsmenn. Það stríð
varð ofurlítið lengra, ofurlítið blóð-
ugra stríðinu 1906. Faðir minn lét
lífið í því stríði. íhlutun Bandaríkja-
manna, skipulögð af hinum fræga
sendiherra Gonzales, styrkti lepp-
stjórnina gegn uppreisnarmönnum.
* 1895—1898; í því stríði var Kúba frelsuð undan stjórn Spánverja.
172