Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1967, Page 5

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1967, Page 5
C. IFrighl Mills Siðleysi velgengiftiimar [C. Wright Mills, sem lézt á miðjum aldri íyrir fáeinum árum, var einna nafukunn- astur bandarískra félagsfræðinga á síðustu áratugum og sá þeirra sem mest áhrif hefur liaft á mótun nýrrar róttækrar hreyfingar meðal ungra Bandaríkjamanna. Ilann trúði enn á nauðsyn þess að breyta heiminum, en því hefur verið öðruvísi farið um marga bandaríska félagsfræðinga þessara tíma. Hann segir á einum stað að hann hafi á unga aldri lesið Balzac af kostgæfni og orðið hrifinn af þeim ásetningi hans að lýsa öllum stéttum og manngerðum þjóðfélagsins á sinni tíð; og Mills tók sér fyrir hendur í þremur höfuðritum sínum að gera þverskurð af bandarísku þjóðfélagi. Hann lýsti fyrst verka- lýðsfélögum og verkalýðsleiðtogum (The New Men of Power, 1948), síðan miðstéttunum (White Collar, 1951) og loks hástéttinni bandarísku (The Power Elite, 1956). Á þessar bækur er nú farið að líta sem undirstöðurit í bandarískri félagsfræði. Ein af skemmti- legustu og aðgengilegustu bókum Mills er The Sociological lmagination, 1959, þar sem hann tekur fræðigrein sína til endurprófunar, og gagnrýnir einnig harðlega aðferðir ým- issa bandarískra félagsfræðinga og misnotkun þeirra á fræðum sínum í þágu auðhringa og valdastéttar. Árið 1958 gaf Mills út The Causes oj World War Three, og 1960 Listen, Yankee, um Kúbu, en kafli úr þeirri bók var birtur í Tímariti Máls og menningar 1961. Þá má nefna Tlie Marxists, 1962, úrval úr ritum marxista (og „fyrrverandi marxista"), frá Karli Marx til Emesto Che Guevara, með inngangi, innskotsgreinum og eftirmála eftir Mills. Hér er birtur lokakaflinn úr bókinni The Power Elite; hann er gott dæmi um gagnrýni Mills á bandarísku þjóðfélagi og kann raunar að eiga við fleiri lönd en Bandaríkin ein. — S. D.] Siðleysi velgengninnar verður hvorki afinarkað sem stjórnmálalegt fyrir- bæri einvörðungu né skilið sem at- ferli siðspilltra manna innan stofn- ana, sem í grundvallaratriðum eru góðar og gegnar. Stjórnmálaleg sið- spilling er ein hlið almennara siðleys- is; siðferðisstig það, sem nú er ríkj- andi, er ekki aðeins bundið við sið- spillta menn. Siðleysi velgengninnar er kerfisbundið einkenni bandarísks yfirstéttarfólks; almenn viðurkenn- ing þess er einn af grunnþáttum múg- hyggj uþ j óðf élagsins. Að sjálfsögðu geta heilbrigðar stofnanir hýst siðspillta menn, en þegar stofnanir eru sjálfar siðspill- andi, hlj óta margir þeir, sem þar lifa og starfa, að bíða siðferðilegt tjón. Á tímum samsteypu og kerfa verða við- skiptahættir ópersónulegir; þeir sem fara með framkvæmdastj órn finna 307
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.