Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1967, Qupperneq 21

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1967, Qupperneq 21
því að þau viðbrögð, sem nú var lýst hafa leitt til þess sem nefna mætti „sköpun góðs sambands við almenn- ing“, sem er ávallt kostnaðarsamt fyrirtæki og stundum með þeim hætti, að nálgast æði. Þeir sem njóta í senn valda og þjóðfélagslegs álits eru ef til vill bezt settir, þegar þeir þurfa ekki beinlínis að leita eftir hylli almenn- ings. Menn af gömlum og grónum ættum með ósvikið ættarstolt leita þess ekki; menn sem eru frægir vegna starfs síns eða stöðu leita þess Ijóst og leynt. Fer það í vöxt, eins og þegar hefur verið bent á, að máttar- stólpar í stjórnmálum, viðskiptum og her keppi við stjörnur skemmtana- iðnaðarins og reyni þannig að heyja sér álit. Ef til vill munu þeir, sem fara með fordæmalaust vald án þess dýrðarljóma, sem gott álit veitir, á- vallt leita slíks álits með samskiptum við þá, sem njóta almenningshylli án valds. Það sem heldur við þeirri blekk- ingu, að í Bandaríkjunum ríki þjóð- félagslegt jafnvægi er, hvað fjöldann varðar, einkum tvennt: sú dreifing hugans, sem hlýzt af því að fylgjast með ferli frægðarfólks, og ástand í efnahagsmálum, sem skapazt hefur af stríðsgróða; hvað varðar hinn frjáls- lynda menntamann, sem áhuga hefur á stjórnmálum, er það pólitísk starf- semi og áhrif staðbundinna heilda innan rikisins og þeirra stofnana, sem hafa völd í meðallagi. Fjölmiðl- SiSleysi velgengninnar unarstarfsemin beinist einkum að frægðarfólki, áhugi hinna frjálslynd- ari menntamanna, ekki sízt háskóla- manna, sem hlotið hafa menntun í félagsfræðum, að hinu hávaðasama miðstéttarvaldi. Menn sem eru fræg- ir stöðu sinnar vegna eru ásamt miðlungsstjórnmálamönnum auð- kenndustu þegnar kerfisins; í raun- inni einoka þeir í sameiningu þá kynningu, sem allur almenningur fær í fréttaformi, og draga jafnframt huliðsblæju yfir þá, sem fara með æðstu völd, eða leiða athygli manna frá þeim. Hæstu tindar bandarísks þjóðlífs á okkar tímum eru annars vegar um- leiknir glansandi æsibirtu, sem fylgir frægðarfólki skemmtanaiðnaðarins, hins vegar lofsælum dýrðarljóma valds, máttar og auðs. Samband er á milli þessara tinda. Valdastéttin er ekki eins áberandi og frægðarstj örn- urnar og kærir sig oft ekki um slíkt; „vald“ atvinnufólksins á sviði frægð- arinnar er vald dægrastyttingar og skemmtanalífs. Bandarískur almenn- ingur hefur vissulega undarlega hjá- guði. Atvinnumennirnir eru annað- hvort gljáfögur lítil dýr eða léttúð- ugir trúðar; valdamennirnir virðast sjaldan vera dæmigerðir fyrirmynd- armenn. Sú óvissa í siðferðilegum efnum, sem nú ríkir meðal bandarísks yfir- stéttafólks er því vel skiljanleg. Til- vist þeirrar óvissu er rækilega stað- 323
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.