Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1967, Síða 28

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1967, Síða 28
Tímarit Máls og menningar unurn má fylgjast með hreyfingum tjaldamannanna (það eru upsfirzku verka- mennirnir, þeir hafa nú brugðið sér í brúnleitan vinnuslopp); þeir bera húsgögnin framá pallinn, viðamikið skrifborð, leðurhœgindastól, kringlótt reykingaborð, uppstoppaðan hund (af íslenzka kyninu) mórauðan að lit. Það syngur í símavírum, morsehljóð, útvarpstruflanir, Jón Aðalgeir Þór, veltil- hafður uppbótarþingmaður, kemur sér fyrir í slólnum umleiðog tjaldamenn- irnir Ijúka sér af. Hann dregur Morgunblaðið uppúr vasa sínum og fer að lesa það. Eymundur jarl kemur gangandi, hann staðnœmist álengdar og þurrkar af gleraugunum sínum. Þeir eru báðir í yfirnáttúrlegri stœrð. Þá birtir. EYMUNDUR: Kæri Jón! Þú þekkir byggingarsögu kúabúsins, ég tala við þig sem lögfræðing, persónuleg ágreiningsmál geta legið milli hluta. Hann pú- ar á gleraugun. Rekstrarfjárskorturinn verður náttúrlega tilfinnanlegri með hverju ári sem líður, ekki ber því að neita þó við styðjum stjórnar- stefnuna, en annað er það sem meiru varðar en peningalán eða -styrkir og yfirdráttarskuldir, en það er trúin. Trúin á möguleikana. Hvort sem þeir eru framkvæmanlegir eða ekki. Þú veizt ekki síður en ég hvernig háttar til á Upsafirði, þetta fólk mundi hreintútsagt verða ósjálfbjarga ef ég drægi mig til baka, hugsjónin heldur mér uppréttum og það styður sig við mig, ég er beinagrindin í lífi þess, það mundi hverfa af hólminum, ég segi ekki undireins heldur smámsaman, það mundi flýja inní þægindin, því þæg- indin eru nú einmitt það sem sálin þráir, þegar öllu er á botninn hvolft, ekki sízt hér, norður við Dumbshaf, hver ætti þá líka að skaffa þeim vinnu? Hvert sem við lítum týna bæjarreknu fyrirtækin tölunni nema þarsem hlutafélagsformið hefur orðið ofaná: þetta er okkar bitra reynsla af félags- búi. Nú! Hann setur upp gleraugun og gengur framar. Samband mitt við bankana hefur til þessa verið vel þolanlegt, maður má ekki gera of miklar kröfur, rekstrargrundvöllur sj ávarútvegsins er afskaplega veikur, við erum háðir heimsmarkaðsverðinu, við getum ekki leyft okkur ábyrgðarlausa kokhreysti einsog uppmælingaaristókratíið sem bara heimtar, Hann kumrar, öll mín veð hafa þeir tekið til greina, að segja má umyrðalaust, meira- segja hjallskriflið sem ég keypti af Manga refaskyttu tilað herða lúðurikl- ing, hann gat ég veðsett þeim fyrir tvö hundruð og fimmtíu þúsund króna láni þó hann kostaði mig ekki nema 10, viðgerðarkostnaður meðtalinn, þá fóru þeir ekki framá neina mynd. Uppbyggingin í Geirastaðakoti vakti þegarístað áhuga þeirra, ég sýndi þeim teikningarnar, þaðsem ég fékk fékk 330
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.