Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1967, Side 34

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1967, Side 34
Steinar Sigurjónsson Svipmyndir úr þorpinu í viktarskúrnum voru bílaviðgerðamenn í grænum kuldaúlpum að tala um smurníng og felgur. Margir eru ílla rakaðir og í úlpum. En í þorskhaus- haugi niður við verksmiðju er bílvél. Mennirnir skoða hana stundum. Þeir horfa oft á hana í sólskini gegnum tóbaksreyk. Þeir höfðu alltaf sígarettur uppí sér og drógu augun í púng. Einn þeirra spurði til dæmis hvort borgaði sig ekki að kaupa liana, en þegar einhver sagði að hann vissi það ekki gengu allir uppí viktarskúr að reykja og tala. Og eftir sem áður var slor í þorpinu. Ekkert breyttist. En einu sinni voru engar úlpur. Og vélinni er ætlað að vera þar sem hún er, þótt hún sé ekki gömul, máluð fallegu grænu lakki. Hún var fundin upp af mönnum af hvítum kynstofni, einhverjum bláókunnugum mönnum í stóru landi. Skrítið. Og þeir voru kannski stundum sveittir eins og menn í þorpinu? Að minnsta kosti er margt skrítið. Furðulegar sögur hafa orðið til um spéhræðslu, til dæmis. Alls staðar er eitthvað sagt og allar ríkar tilhneigíngar eru frá hjartanu og sögurnar áttu kannski að vera eins og þær voru til þess að sá tími skapaðist sem orðið hefur? Já. Ef til vill á þessi tími að vera alveg eins og hann er. En ef svo er, hvað er þá skrítið. Ekkert? Þá er bílvélin eðlileg og fögur? Þá er hún eins dásamleg og túnglið? Hún er græn. Það sést greinilega í nýmálað lakkið hér og þar þótt hún sé útbíuð í svartri smurníngsbrækju. En einu sinni voru ekki svona vélar og einu sinni voru ekki til grænar úlpur. í stað þeirra klæddust menn sauðbrúnum peys- um. Þeir tuggðu og spýttu og voru karlar í krapi. Og þá var ekki tjallatæki. Sumir sögðu það, og það er alveg rétt. Þeir stóðu upp að hálsi í brimi og komu heilu og höldnu til lands. Oftast. En nú eru menn í grænum hettu- úlpum sem einu sinni voru ekki til. Skrítið. Og margar furðulegar sögur eru til um þá sem voru í peysum. Þeir stóðu við stýri og drápust eða lifðu í hroðanum. Svoleiðis sögur eru sagðar í myrkri. Um aðra eru engar sögur. Og nú eru bílagírasmurníngsmennirnir að reykja í hitanum við rafmagns- ofninn í viktarskúrnum. Þar hafast þeir við á daginn og tala og reykja í úlpunum. Oft. En úti er stundum regn. Stundum er sólskin. Oft er kalt en 336
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.