Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1967, Page 36

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1967, Page 36
Tímarit Máls og menningat sveitavarginum síldarmjöl. Pakkhúsmaðurinn er oít rínglaður í stígvéluin innan um striga sagir og gærur, en gærurnar eiga að fara til Reykjavíkur með stórum skipum. Og nú gengur Gulli framhj á öðrum polli og ropar. Hvað ætli hann hugsi? Samt sem áður vita allir að í nótt og allar nætur er aukavinna við að moka úr skipum, salti í dag, sementi eða kolum á morgum, en um helgar eru dans- leikir ef ekki er brjáluð vinna alls staðar og þá er slegið í borð, eins og 17. júní, og sagt til dæmis, Hann Magnús hefur aldrei haft annan eins mann og mig til sjós. Og alltaf eru logandi slagsmál á dansleikjum og á sunnu- dögum bölva fullorðnir menn af því þeim er íllt af fyllibyttuskap og eiga ekkert eða þá að þeir halda áfram að þamba bjór og vín inná sjoppu og hlæa og skella á lær eins og asnar af því þeir eru fyllibyttur. En einu sinni voru engar grænar úlpur eða rafmagn eða bílvélar. Það er mjög undarlegt. Gömul dráttarvél hefur líka verið í þessum sama þorsk- haugi í fleiri ár en það er ekkert skrítið við hana af því hún er gömul og ryðguð og brún eins og jörðin. En græna vélin er ef til vill skrítin. Að minnsta kosti er hún skrítin þegar maðkaflugan lifnar á sumrin og fer að skríða á henni í sólinni og sveima yfir henni í allri fýlunni. Það er eitthvað dularfullt. Ég veit ekki hvers vegna. Hún er úr bíl með nafni frá útlöndum og einn maður með sígarettu í munninum sagðist ekki vita livort borgaði sig að kaupa hana og hann átti nóg af peníngum, á hvítri skyrtu undir úlp- unni, og flestir voru ríkir. En þó voru þeir forvitnir og töluðu og töluðu með sígarettur milli vara og áttu vindlakveikjara og falleg úr. Ég get ekki hætt að hugsa um þetta. Þó getur verið að vélin sé ekki skrítin. Og kannski er túnglið og hafið ekki dularfullt. Kannski skiptir engu máli hvort kynstofninn sem setti hana saman er hvílur eða svartur. Ef til vill er ekkert skrítið við lífið þótt í sum- um húsum sé hlandlykt og mikið af flugum á þiljunum í fýlunni. Ef til vill er græna vélin ekkert skrítin í raun og veru heldur falleg eins og haf eða túngl. Því meira að segja þorskar eru elskaðir af öðrum þorskum og meira að segja jötunuxar eru elskaðir! Og étnir! namm namm, og þykja góðir! Og hvað er þá skrítið? Ég hugsa og hugsa um livað sem er. Lífið. Til dæmis um gamla húsið og fólkið. Því Gunna sefur hjá því í húsinu. Hún er með rósakinnar, í fallegu koti, með sólskinshár og allt allt öðruvísi en gamla fólkið. Hún stendur oft við gluggann og hugsar og bíður eftir einhverju þótt hlandfýlan sé í húsinu. Er lífið þá ekki eitthvað skrítið, úr því hún er í húsinu? Er hún þá ekki 338
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.