Tímarit Máls og menningar - 01.11.1971, Qupperneq 3
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR . 32. ÁRG. 1971
HEFTI . NÓV.
Sigurður Nordal
Til Kristins £. Andréssonar
Kristinn minn!
Sem betur fer, hef eg örsjaldan þurft að skrifa þér til, því að þau tæp fimm-
tíu ár, sem liðin eru síðan þú komst í „deildina“, höfum við aldrei misst svo
lifandi samband hvor við annan, að bréfaskipti hafi verið nauðsynleg. Eg
ætti því vitanlega í þessum fáu línum að reyna að segja eitthvað um þig
handa öðrum. En þá kemur mér það í hug, sem einn kunningi minn hefur lagt
í munn persónu, sem á ekki að vera mér alveg óskyld: „Það er bagalegt, að
þú skulir ekki vera dauður, svo að eg geti skrifað um þig!“ — Nú hefur for-
sjónin hagað því svo vísdómslega, ef allt fer að sköpum, að mér er ekki ein-
ungis meinað að skrifa um þig dauðan, heldur forðað frá því að lesa það sem
aðrir skrifa, hvort sem það verður í ætt við hetjusögur eða heilagra manna
sögur eða hvort tveggja, sumt of og þó líklega fleira van. En ef fyrir mér ætti
að liggja að leggja þar eitt orð í belg, dettur mér nú í bráðina í hug ólíkinda-
tól, svo illa viðeigandi sem það getur virzt vera, hvort sem er um sj ötugan öld-
ung eða látinn merkismann. Samt er í því það sannleikskorn, að þú hefur
oftar komið mér á óvart en flestir jafnkunnugir menn. Mér er t. a. m. enn í
fersku minni, hvað eg varð gáttaður, þegar eg í fyrndinni las í blaði, að á
þingmálafundi í Borgarnesi, þar sem hver höndin var upp á móti annarri,
eins og von var, hefði tillaga frá þér að flytja alþingi til Þingvalla verið sam-
þykkt í einu hljóði. Nú gat eg reyndar talið fundarmönnum til málsbóta, að
þetta hafi (að mínu viti) verið allra vitlausasta tillagan, sem þarna var borin
upp! En samt fann eg um leið, að fyrir henni hafði hlotið að vera mælt af
einhverri kynngi, sem eg hafði ekki komizt á snoðir um af hversdagslegu
framferði míns hlédræga og hógláta nemanda. Og síðan hefur fleira rekið
hvað annað en eg gæti talið í löngu máli. Eg man eftir þér búandi í tjaldi í
nágrenni bæjarins og grúskandi í gömlum austfirzkum skáldskap niðri á
6 TMM
81