Tímarit Máls og menningar - 01.11.1971, Qupperneq 11
Merking hugtaksins ,vinstri'
er hægt að vera vinstrisinnaður með tilliti til einnar hreyfingar. Aðeins með
þannig samanburði öðlast þessi orð skynsamlega merkingu.
En hvað meinum við, þegar við segjum að hreyfing eða afstaða sé vinstri-
sinnuð í samanburði við aðra? Sér í lagi, hvaða atriði í hugtakinu ,vinstri-
hyggj a‘ getum við notað um hverskonar félagslegt ástand? Hvað meinum við
til dæmis, þegar við tölum um vinstrisinna í Alþýðuflokknum, Framsóknar-
flokknum, Sjálfstæðisflokknum, eða Alþýðubandalaginu?1 Er nokkuð sam-
eiginlegt í orðinu ,vinstri‘ þegar það er notað í svo mismunandi samhengi?
Eða segjum við einfaldlega, að sérhverjar pólitískar kringumstæður sýni
eitthvað mannlegt atferli, sem við erum hlynnt eða teljum bærilegt, og kallast
því „vinstri“ af okkur. (Ég segi „af okkur“ vegna þess að greiningin í vinstri
og hægri er gerð af vinstrisinnum, en hægrisinnar berjast árangurslaust á
móti henni — því að sj álfsskilgreining vinstrimanna nægir til að skilgreina
hvað hægrisinni er, og til að halda þannig aðskilnaðarmörkunum áfram).
Eindregnir afturhaldshópar nota oft orðið ,vinstri‘ um sjálfa sig, eflaust
vegna þess að hugtakið ,vinstri‘ hefur öðlazt þekkilega merkingu. Þar af
leiðandi gefur einföld notkun orðsins ,vinstri‘ ekki nægilega til kynna merk-
ingu þess. Við þörfnumst fleiri einkenna, sem gera okkur kleift að greina
orðið nánar. Vissulega heyra viðkvæði eins og ,frelsi‘ og ,jafnrétti‘ til hefð-
bundins hluta vinstrihyggju, en þau eru þó merkingarlaus frá því augnabliki
sem þau verða slagorð, sem sérhver notar eftir sínu eigin höfði. í tímans
rás verðum við stöðugt að skilgreina vinstrihyggju nákvæmar. Því meiri
áhrif sem hún hefur á félagsvitundina, þeas. því meir sem viðkvæði hennar
samtvinnast almennum hugmyndum í félagsvitundinni, þeim mun meira
hljóta þessi viðkvæði að verða yfirtekin af hægrihyggju og glata þannig
sinni ákveðnu merkingu. í dag berst enginn á móti slíkum viðkvæðum sem
,frelsi‘ og ,jafnrétti‘ og þessvegna geta þau orðið tæki til svika, tortryggi-
leg án nánari skýringar. Ennþá verra er, að orðið ,sósíalismi‘ (jafnaðar-
stefna) er nú notað í margskonar merkingum.
Auðvitað er auðvelt að skilgreina vinstrihyggju í almennum orðum, og
það sama gildir um hugtakið ,framfarir‘. En almennar skilgreiningar hljóta
ætíð að vera blekkjandi, og valda erfiðleikum, ef notaðar skulu þegar rætt
er um ákveðin vandamál. Við getum td. sagt, að það að vera ,vinstrisinni‘
merki að taka þátt í félagslegri þróun, sem stefnir að gjörbreytingu sérhvers
félagslegs ástands, þar sem möguleiki til fullnægingar mannlegra þarfa er
hindraður af félagslegum kringumstæðum. Með slíkri skilgreiningu getum
við myndað ýms slagorð, sem eru svo almennt viðurkennd að þau verða
89