Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1971, Page 15

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1971, Page 15
Merking hugtaksins ,vinstri‘ hluta sem er meira til vinstri vegna tiltekinna málefna. Það þýðir þó ekki að samanlögð vinstri öfl allra flokka séu ein hreyfing, eða að þau séu tengdari hvort öðru, fremur en þeim flokkum sem gátu þau af sér. Þau væru sam- tvinnuð hreyfing, ef þau að öllu leyti uppfylltu grundvallaratriði vinstri- hyggju; en þá væru þau heldur ekki hlutar af svo mörgum flokkum með svo margar stefnuskrár. Vinstri armur Framsóknarflokksins hefur til dæmis mik- ið fleira sameiginlegt með þeim flokki, heldur en með vinstri armi Alþýðu- bandalagsins, og einmitt þessvegna er hann vinstri armur Framsóknar- flokksins.2 Vinstra hugarfar kemur þar í ljós í afstöðu til eins eða annars pólitísks vandamáls, sem er á döfinni, þegar hann í því tilviki nálgast vinstri arma annarra flokka — td. í fordæmingu hernaðarstefnu. Þannig sinna mismunandi flokkar kröfum vinstrihyggjunnar á mismunandi hátt, og eru því meira eða minna til vinstri. Annmarkar vinstrihyggju Aðalannmarkar vinstrihyggju eru ekki þeir að hún varð til úr neikvæði, heldur að neikvœði hennar komst aðeins á svið siðferðilegra andmæla og ekki á svið raunhœfrar (praktískrar) hugsunar. Vinstri afstaða á siðferðislegu sviði einungis, leiðir í reynd ekki neitt af sér. Slæm samvizka er engin pólitísk stefna. Annar annmarki, sem við okkar aðstæður var óhjákvæmilegur, var að vinstriliyggja gat aldrei orðið að skipulegri hreyfingu, heldur aðeins óljós, sundruð vitund. Oðru máli gegnir um hægrihyggju. Henni háðu ekki neinar efasemdir um hollustu, þótt klofningshópar mynduðust innan Flokksins. Vinstrihyggja varð heldur aldrei að neinni pólitískri hreyfingu í bókstaf- legri merkingu, hún var aðeins samansafn af sjálfglæddu siðferðismati. Enn einn annmarki vinstrihyggju varð vegna óhagstæðs alþjóðaástands, sem ég geri ekki að nánara umtalsefni, en sem hefur orðið hægrihyggju mjög mikill styrkur. (Hér skírskotar höfundur til stjórnmálaþróunarinnar í Sovétríkjunum. Þýð.). Aðrir veikleikar vinstrihyggju voru þær kringumstæður, sem hægri- hyggja gat dregið styrk frá. Hægrisinnar víla ekki fyrir sér að nota hvers- konar lýðskrum, pólitísk og hugmyndafræðileg slagorð, sem auðvelda þeim að halda yfirtökunum. Ef nauðsynlegt reynist, grípa þeir til kynþáttahat- urs til þess að vinna fylgi hinna þröngsýnustu innan eða utan Flokksins. Hægrisinnar sækjast fyrst og fremst eftir völdum. í baráttunni um völdin, 93
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.