Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1971, Page 64

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1971, Page 64
Tímarit Máls og menningar hefur og mótaði það skrásetningarkerfi á öllu efni, sem herst, að tiltölulega auðvelt á að vera fyrir hvern sem er að finna það, sem hann leitar að, hvort sem hann sækist eftir upplýsingum um tiltekið eíni, um einstök héröð eða jafnvel frá einstökum mönnum. Þó er eitt eilífðarverk ennþá mjög ónóglega unnið að því er varðar skrásetningu og þar með notagildi safnsins, en það er atriðisorðaskrá, sem unnt sé að fletta upp í til að sjá á svipstundu, hvar í plöggum safnsins sé að Ieita heimilda um einstök fyrirhrigði. En til að koma því verki í viðunandi horf skortir einfaldlega tíma eða peninga eða vinnu- kraft, — nú einhver vildi kannski segja einfaldlega dugnað, eins og síðar mun að vikið. Söfnunarstarf þessarar deildar hefur enn sem komið er að mestu farið fram með þeim hætti, að spurningalistar eru sendir til sem flestra um land allt og svörin síðan skrásett sem kyrfilegast. Einnig hefur nokkuð verið farið um og skráð eftir fólki með penna eða segulband að vopni. En þessi iðja hefur þó verið minni en skyldi, og veldur það enn, að einum starfsmanni er óhægt um að deilast í marga staði. Skortur á starfsfólki er tilfinnanlegur, enda ræð- ur ríkjum sú undarlega íslenzka hagsýni, að drjúgur hluti af vinnutíma sér- fræðinga í háum launaflokki fer í að sleikja frímerki, vélrita utan á umslög, pakka mní þau og hefta aftur, og framkvæma ýmiskonar skrásetningarstarf, sem meðalgreindur gagnfræðingur gæti innt af hendi með ágætum. Spurningaskrár þær, sem hingaðtil hafa verið sendar út, fjalla um eftir- talin meginatriði: slátrun búfjár og sláturverk, haugburð, vallarvinnu og hirð- ingu eldiviðar, andlát og útfararsiði, nýtingu mjólkur, fráfærur, barnsfæð- ingar, gestakomu, íslenzka skó, ull og tóvinnu, torfskurð, móverk, vegg- hleðslu, sumardaginn fyrsta, heyvinnu, himintungl og hrossalækningar. Sá hópur manna, sem er í slíku skriflegu sambandi við þjóðháttadeildina, er hinsvegar alltof fámennur; aðeins 2—300 manns, og að jafnaði berast ekki nema 50—100 svör við hverri skrá. En þetta fólk leggur líka meiri verðmæti af mörkum en það sjálft órar fyrir, og orðstír þess mun vonandi ekki deyja. Staðreynd er hinsvegar, að til er margfaldur fjöldi þess hóps um landið allt, sem fullt eins mikil ástæða væri til að hafa samband við. Það verður deginum ljósara á ferðum meðal fólks, svo og af undirtektum þeim og bréfum, sem borizt hafa vegna útvarpsþátta um þjóðháttaleg efni. En þetta fólk fæst sjaldnast til að starfa með því einu að senda því bréf, því það er margt bréfið nú á dögum; heldur verður að kynnast mönnum persónulega augliti til auglitis, drekka kaffi í rólegheitum, helzt gista og yfirleitt reyna að sanna, að maður sé ekkert sérstakt fúlmenni, sem muni gera 142
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.