Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1971, Page 65

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1971, Page 65
Vm íslenzka þjóðhœtti háð úr öllu saman, eins og þeir sögðu sumir fyrir hundrað árum. Og þetta tekur sinn tíma. Það dugir semsé ekki að fara að með amerískum hraða eins og Bandaríkjamaðurinn, sem var að sanka að sér heimildum um huldufólks- trú á írlandi, knúði dyra á hverju húsi og kallaði inn: „Hey, do you believe in fairies?“ Vissulega væri æskilegast, að unnt reyndist að hitta að máli hvern mann á landinu, sem náð hefði sjötugs- eða jafnvel sextugsaldri, rekja úr honum vitneskjuna og skrifa hjá sér eða taka upp á segulband. Ekki má heldur gleyma því, sem öllu öðru tekur fram við varðveizlu þekkingar um gömul vinnubrögð og venjur, en það eru vel gerðar heimildarkvikmyndir. Danskur maður, Aage Rothenborg, sem gert hefur þjóðháttakvikmyndir fyrir danska þjóðminjasafnið um áratuga skeið, gaf Þjóðminjasafni íslands við komu sína hingað í haust táknræna fjárupphæð sem fyrsta framlag til að unnt verði að koma á fót safni kvikmynda um íslenzka þjóðhætti. Væntanlega vilja ekki aðeins erlendir aðilar styðja slíkt málefni, og vonandi hefur þetta framtak útlendings sviplík áhrif á íslendinga og fordæmi Konráðs Maurers fyrir 110 árum. En þá ríður mikið á, að engir fúskarar verði látnir vinna verkið. Þar þarf bæði gjörþekkingu á fyrirbrigðinu, sem á að kvikmynda, og kunnáttu og útsjón í meðferð kvikmyndatækjanna. Og einkanlega má gæta sín á því að sviðsetja löngu horfin fyrirbæri. Verklagið verður enn að vera mönnum lif- andi veruleiki, svo að útkoman verði ekki kauðaháttur og tilgerð. En hvað sem því líður, þá yrði þessi aðferð ærið seinleg, ef fara ætti um landið allt, nema talsvert starfslið ynni að því. Og að þessu þarf einmitt að vinda bráðan bug á næstu árum. Við erum nefnilega í þeirri aðstöðu að hafa búið við tiltölulega kyrrstætt eða a.m.k. hægfara atvinnu- og menningar- ástand um aldaraðir fram um síðustu aldamót. Og það er varla hægt að segja, að nútíminn haldi verulega innreið sína fyrr en á síðustu 50—60 árum, og tæknibyltingin heldur ekki sína sigurför fyrr en á síðustu 30 árum. Það ætti því enn að vera gerlegt að safna allítarlegum heimildum um daglegt líf, vinnubrögð, venjur og viðhorf hjá þjóð, sem var allþroskuð á sviði bók- menningar, en vanþróuð á sviði verkmenningar. Enn eru til í landinu nálægt 1000 manns, sem eru 85 ára og eldri, þ. e. fólk, sem fræðilega séð ætti að geta munað vel eftir sér frá því um og fyrir aldamót. Og um það bil 2000 í viðbót eru yfir áttrætt. Sjálfsagt er það ekki nema hluti þessa fólks, sem af heilsu- farslegum ástæðum getur gefið nokkrar upplýsingar, en þótt ekki tækist að virkja nema nokkur hundruð eða nokkra tugi þeirra, þá væri það ómetan- legt. En þetta yrði að gerast tafarlaust, því að sá slyngi sláttumaður veitir 143
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.