Tímarit Máls og menningar - 01.11.1971, Page 70
Tímarit Máls og menningar
menn. Langskólanámið hefur mörgum orðið torsótt eins og að líkum lætur
og mörgum Islendingi hlekktist á á námsbraut Hafnarháskóla. Stundum urðu
menn að hætta námi af ýmsum ástæðum án þess að ljúka prófi. Og þótt próf-
skírteini væri fengið var engin vissa fyrir því, að menn gætu fengið atvinnu
í sinni grein að námi loknu, og gildir það raunar enn í dag. „Bókvitið verður
ekki í askana látið“, er gamalt máltæki, sem nú hefur að vísu vikið fyrir öðru
vígorði: „Mennt er máttur“, sem sjálfsagt er einnig gamalt máltæki.
Samt er það svo, að atvinnuleysi lirjáir menntamenn ekki síður en ó-
lærða. íslenzkir menn háskólalærðir verða nú margir hverjir að leita sér at-
vinnu í öðrum löndum. Miðað við eftirspurn hérlendis virðist svo sem
framleiðsla menntamanna sé of mikil. Svona var þetta einnig áður. Menn
sem luku prófi við erlendan háskóla eða verkfræðiskóla fyrir stríð máttu
jafnan spyrja sjálfa sig: Fæ ég nokkuö að gera heima í mínu fagi? Svo
reyndist yfirleitt ekki, nema menn hefðu einhvern bakhjall. Eftirspurn var
nánast engin og raunar ekki heldur auövelt að fá atvinnu í útlöndum á þeim
árum.
Háskóla er ætlað að fjalla um öll svið menningar og lærdóms eins og
nafnið universitas bendir til, en Háskóli íslands var framan af, eins og
margir erlendir háskólar, embættismannaskóli, sem var ætlaö að fullnægja
þörfum hins fábrotna bændaþjóðfélags fyrir andlega og veraldlega embættis-
menn; og kennsla var aöeins í þeim klassisku greinum, guðfræði, lögfræði,
læknisfræði, auk kennslu í norrænu eða íslenzkum fræðum, sem nauðsyn-
leg var ef Háskólinn átti að vera íslenzkur háskóli. Háskólanám er þó mun
eldra hér á landi en Háskólinn sjálfur. Prestaskóli var stofnaður árið 1847,
læknaskóli 1876 og lagaskóli 1908. Háskóli íslands hefur auðvitað tekið
miklum breytingum á þeim 60 árum sem hann hefur starfað. Veturinn 1911
—12 voru í Háskólanum 45 stúdentar. íslendingar voru þá 85 þúsund, en nú
er fjöldi háskólastúdenta um hálft annað þúsund og fjöldi landsmanna 205
þúsund. Á seinni árum hefur námsleiöum verið fjölgað, m. a. tekin upp
kennsla í verkfræði og nútíma vísindagreinum eins og kunnugt er.
Náttúruvísindin eru ekki aðeins hagnýt sem undirstaða verkfræði og
tækni eða tæknifræða, þau eru einnig ásamt hugvísindum grundvöllur al-
mennrar menntunar.
íslendingum er nauösynlegt að fylgjast með í þróun og framförum ná-
grannaþjóða á sviði menntunar, ef þeir ætla að halda til jafns við þær í
lífskjörum. Þróun tækninnar hefur verið mjög ör á seinni árum og efnalegar
framfarir byggjast a. m. k. að talsverðu leyti á aukinni tækni. Aukning
148