Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1982, Side 12

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1982, Side 12
Tímarit Máls og menningar Sígild verk á leiksviði Ekki er alltaf auðvelt að þekkja mun á lífi og dauða þegar um annað en lifandi verur er að ræða. Læknir getur úrskurðað hvenær lífsneistinn hverfur og ekki er annað eftir en einskisnýt hrúga beina og vefja, en það er erfiðara að segja hvenær slíkur neisti hverfur úr formi eða hugmynd. Við skulum líta á ákveðið dæmi. Frakkar nota tvær steindauðar aðferðir til að leika hina sígildu harmleiki sína. Önnur er hefðbundin, hún krefst há- tíðlegrar og sönglandi framsagnar, sérstakrar framgöngu og tiginmannlegs yfirbragðs. Hin aðferðin er kákkennd stæling á þeirri fyrrnefndu. Hún var fundin upp af yngri kynslóð leikara sem gat ekki sætt sig við forneskju- legan leikmáta og reyndi að skapa stíl í nánari tengslum við veruleikann. Leikarinn vill flytja ljóðlínurnar á eðlilegri hátt og láta þær hljóma eins og daglegt tal. En formfesta textans leyfir ekki slíka meðferð og á endanum verður leikarinn að sætta sig við málamiðlun sem skortir hressilegan blæ talmálsins og hátíðleika leikhefðarinnar. Utkoman verður að sjálfsögðu máttvana flutningur sem fær menn til að minnast gamla leikstílsins með söknuði. Og raddir taka að heyrast um að leika eigi harmleikinn á ný „eins og hann er skrifaður“. Þetta er í sjálfu sér ekki ósanngjörn krafa, en því miður veitir orðið á blaðinu okkur engar upplýsingar um hvernig það var eitt sinn gætt lífi. Við eigum hvorki myndsegulbönd né hljóðupptökur heldur aðeins sérfræðinga sem hafa ekkert frá fyrstu hendi heldur. Sá veruleiki sem fæddi af sér harmleikinn er löngu horfinn; eftir eru aðeins nokkrar eftirlíkingar í gervi hefðbundinna leikara sem halda áfram að leika eins og þeir gömlu gerðu. Þeir sækja ekki fyrirmyndir sínar til raunveru- leikans heldur tilbúins veruleika; þegar slíkur leikari myndar t. d. hljóð rifjar hann upp hvernig lærifaðir hans fór að — sem aftur tók sömu hljóð eftir sínum læriföður. Eg var eitt sinn viðstaddur æfingu í franska þjóðleikhúsinu, Comédie Fran^aise, og horfði á ungan leikara sem líkti í einu og öllu eftir málrómi og látæði aldraðs leikara sem lék hlutverkið fyrir framan hann. Það má ekki jafna dauðum eftirhermum af þessu tagi við jafn merkilega leikhefð og má til dæmis finna í Nóleikhúsinu japanska þar sem faðirinn kennir syni sínum grundvallaratriði formsins. I því tilviki er það merking sem er flutt á milli kynslóðanna — merking heyrir aldrei til dauðri fortíð því að henni má ævinlega finna stað í lífsreynslu hvers einstaklings. Þegar við snúum okkur að Shakespeare kveður hið sama við: „Leikið það sem skrifað stendur!" En hvað stendur skrifað? Tákn á blaði. Við höfum á hraðbergi fjölmörg orð til að lýsa klassískum verkum, orð sem ekki búa yfir neinni raunverulegri merkingu. Og ef við reynum að búa til 378
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.