Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1982, Síða 107

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1982, Síða 107
Höfundurinn sem framleiðandi stoðarleikara og háþróaðri sviðstækni vinnur ekki síst gegn framleiðendun- um vegna þess að það þröngvar þeim til að taka þátt í þeirri vonlausu samkeppni sem kvikmyndin og útvarpið hafa ýtt leikhúsinu út í. Þetta leikhús — hvort sem það er ætlað til menntunar eða afþreyingar; þetta tvennt er samtvinnað og bætir hvort annað upp — er leikhús fyrir þjóðfé- lagshóp sem lifir í vellystingum og gerir allt sem í hendur honum kemst að þætti í nautnalífi sínu. Staða þess er töpuð. En sama er ekki að segja um leikhús sem leitast við að notfæra sér og læra af nýjum fjölmiðlum í stað þess að keppa við þá, í stuttu máli lagar sig að þeim. Epíska leikhúsið hefur gert þessa aðlögun að stefnumiði sínu. Það er, miðað við núverandi þróunarstig kvikmyndar og útvarps, leikhús nútímans. I þágu þessarar aðlögunar einbeitti Brecht sér að upprunalegustu þáttum leikhússins. Segja má að hann hafi látið sér nægja pall í stað sviðs. Hann forðaðist rúmfreka atburðarás. Þannig tókst honum að breyta sambandinu milli sviðs og áhorfenda, texta og uppfærslu, leikstjóra og leikara. Hann lýsti því yfir að epíska leikhúsið ætti fremur að sýna aðstæður en rekja atburðarás. Og eins og við sjáum bráðum sýnir það aðstæðurnar með því að rjúfa atburðarásina. Eg minni hér á söngvana sem einmitt hafa það að aðalhlutverki að rjúfa atburðarásina. Með því að rjúfa atburðarásina notar epíska leikhúsið aðferð sem þið þekkið úr kvikmyndum og útvarpi, dag- blöðum og ljósmyndun frá síðustu árum. Eg á við klippinguna: það sem skeytt er inn í ákveðið samhengi brýtur það upp. Leyfið mér að benda á dæmi til að skýra hvers vegna þessi aðferð á hér sérstakan, já og raunar fyllsta, rétt á sér. Með því að rjúfa atburðarásina — og vegna atburðarásarinnar kallaði Brecht leikhús sitt epískt —, er stöðugt barist gegn því að áhorfendurnir láti blekkjast. Slík blekking er nefnilega ótæk í leikhúsi sem ætlar að fjalla um þætti raunveruleikans eins og um tilraun væri að ræða. Aðstæðurnar er að finna að lokinni þessari tilraun, en ekki við upphaf hennar. Þetta eru okkar aðstæður í hvaða formi sem þær nú birtast. Þær eru ekki fluttar nær áhorfandanum, heldur fjær honum. Hann þekkir þær ekki sem raunveru- legar aðstæður með því að lifa sig inn í þær, eins og í leikhúsi natúralism- ans, heldur með því að verða furðu lostinn. Epíska leikhúsið setur ekki aðstæður á svið, heldur uppgötvar þær. Aðstæðurnar eru uppgötvaðar með því að rjúfa atburðarásina. Þetta rof skapar ekki spennu, en hefur á hinn bóginn skipulagningarhlutverki að gegna. Með því er atburðarásin stöðvuð og áhorfandinn þarmeð neyddur til að taka afstöðu til þess sem átt hefur sér stað og sömuleiðis verður leikarinn að taka afstöðu til hlutverks síns. Ég ætla að sýna ykkur með einu dæmi hvernig Brecht breytir með vali og notkun látbragðs þeirri klippitækni, sem gegnir veigamiklu hlutverki í 473
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.