Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1986, Page 52

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1986, Page 52
Tímarit Máls og menningar skyndilega en létt handlegg hans og sagði við hann: „Jæja, nú skulum við ná í börnin á hátíðina. Eg held að það sé kominn tími til þess.“ Hann játaði síðar að sér hefði brugðið, en hann reis á fætur til þess að hóa í flýti saman börnum sínum og barnabörnum og senda boð til prestsins. Presturinn birtist undrandi og í nokkru uppnámi, en það var kveikt á kertunum, dvergarnir látnir hamra og engillinn hvísla. Það var sungið, borðaðar kökur og allt virtist í lagi. IV Nú er það svo að allur gróður er háður ákveðnum líffræðilegum lögmálum og grenitré, sem hafa verið rifin úr jarðvegi sínum, hafa eins og alkunnugt er tilhneigingu til að fella barrnálarnar, einkum ef þau standa í hlýjum stofum, og hjá frænda mínum var hlýtt. Eðal- greni stendur eitthvað lengur en venjuleg grenitré eins og dr. Hegen- ring hefur sannað í hinni frægu grein sinni „Abies vulgaris et abies nobilis“. En jafnvel eðalgreni lifir ekki endalaust. Þegar kjötkveðju- hátíðin nálgaðist var sýnt að reyna varð að búa frænku mína undir nýtt áfall. Barrnálunum fækkaði ört og menn tóku eftir því við sálmasönginn á kvöldin að frænka mín hleypti aðeins í brýnnar. Samkvæmt ráðum virkilega snjalls sálfræðings var nú gerð tilraun til að drepa á það í léttum rabbtón að líða tæki að lokum jóla, sérílagi vegna þess að tré voru farin að bruma, en það boðar að jafnaði vorkomu. Orðið jól er afturámóti á okkar breiddargráðu skilyrðis- laust tengt vetrinum. Föðurbróðir minn stakk mjög klókindalega uppá því kvöld nokkurt að syngja kvæðin „Vorgyðjan svífur . . .“ og „Vorið er komið . . .“, en þegar við fyrsta erindi fyrrnefnda kvæðis- ins varð frænka mín svo þungbúin á svip að það var hætt við og byrjað á „Bráðum koma blessuð . . .“. Þremur dögum síðar var Jóhannesi frænda mínum falið að fremja smáþjófnað, en um leið og hann teygði fram hendurnar til að taka korkhamar af einum dverg- anna rak frænka mín upp svo æðisgengið óp að dvergunum var strax komið í samt lag, kveikt á kertunum og byrjað að syngja í nokkrum flýti en mjög hátt sálminn „Heims um ból“. En helg jól voru löngu liðin. Hópar ungra drykkjurúta fóru um bæinn með lúðrablæstri og bumbuslætti, allt var þakið blöðrum og pappírsræmum. Grímubúin börn fylltu strætin á daginn, skutu, æptu, margir sungu líka og samkvæmt einkaskýrslu voru amk. sextíu 42
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.