Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1987, Síða 11

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1987, Síða 11
Byltingin, bókmenntirnar og sósíalrealisminn Fram þeir halda í fleygum móði Fylgir hungurrakkinn seinn. Og með fána er ber af blóði bjarma, fremstur gengur einn, óttalaus og ekki sár, orpinn mjöllu, perlugljár sem um hjúp úr hvítum rósum hviki blik af stjörnuljósum, móti stormi mjúkleg spor — Mannsins sonur, Drottinn vor! Hvað var Blok að fara? Var hann að smíða úr blóði og skít nýtt guð- spjall, sem réttlætir ógnaröld bolsévismans, eins og ýmsir andstæðingar byltingarinnar töldu? Var hann að reyna að hressa upp á Krist með því að koma honum í bland við byltingu, sem skáldið skildi ekki nema til hálfs, eins og ýmsir bolsévikar töldu? Má vera hér sé við hæfi að vísa í hugleið- ingar Alexanders Bloks sjálfs um hlutverk rithöfundar á því herrans ári 1918. Hann segir að í fyrsta lagi verði listamaðurinn að vita, að það Rúss- land sem var sé dautt og komi aldrei aftur, dautt með sinni menningu, stjórnskipan og trú. Því verði listamaðurinn að snúast af heift gegn öllum þeim sem vilja galvanísera dauðan skrokk Rússlands, og til að þessi reiði snúist ekki í lágkúrulega beiskju verði hann að varðveita þekkingu sína á mikilleika tímans og gleyma aldrei hinni miklu þýðingu tveggja orða : „fé- lagslegt misrétti". Auk þess beri honum að búa sig undir enn stærri atburði en þegar hafi orðið og að lúta þeim þegar þar að komi. Með öðrum orðum: byltingin er svosem ekkert teboð, eins og Tólf- menningarnir sýna, en mikil tíðindi hafa gerst sem verða ekki aftur tekin, og skáldið vill ekki verða utangátta á miklum tímamótum. Því á það að brýna fyrir sér óréttlæti þess heims sem er að hrynja og auðvelda sér þar með að skrifa sig í takt við framvindu sögunnar, sem byltingarmennirnir sjálfir voru sífellt að ákalla. Og svo aftur sé vikið að Tólfmenningunum þá má vel líta svo á, að þegar Kristur ber undir lokin rauðan fána fyrir „löngu tugthústækum" rauðliðum, þá birtist í þeirri mynd von skáldsins um að hamfarir byltingarinnar séu nauðsynleg hreinsun, upphaf þess sem gott er og fagurt, von um að höndla megi æðri tilgang mannlegra harmleikja. Sergei Jesenín var bóndasonur frá Rjasan sem hlaut kornungur mikla hylli fyrir einlæg og dapurleg ljóð sín um kornslátt og kýr, akra og engi og var heilög guðsmóðir kannski á vappi í þessu sæla landslagi með skýluklút á höfði. Þetta efnilega alþýðuskáld tók byltingunni fagnandi, bolséviki var hann ekki, en stóð nálægt samstarfsflokki þeirra, Vinstri-þjóðbyltingar- 401
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.