Tímarit Máls og menningar - 01.11.1987, Blaðsíða 56
Isak Babel
Bréfið
Hér fer á eftir bréf sem drengur einn í okkar hersveit, Kúrjúkov,
las mér fyrir til að senda heim. Það á ekki skilið að falla í gleymsku.
Eg skrifaði það upp án þess að fegra það og kem því til skila orð-
réttu, sannleikanum samkvæmt.
„Elsku mamma, Jevdokía Fjodorovna. í fyrstu línum þessa bréfs
flýti ég mér að tilkynna yður að ég er lifandi og hress, lof sé guði, og
óska að heyra slíkt hið sama frá yður. Sömuleiðis hneigi ég mig
djúpt fyrir yður frá andliti fölu til rakrar jarðar. . . . (Hér fer á eftir
upptalning á ættingjum og venslafólki. Sleppum henni. Snúum okk-
ur að næstu málsgrein.)
Elskulega mamma, Jevdokía Fjodorovna Kúrdjúkova. Best ég
skrifi yður strax, að ég er staddur í rauða Riddarahernum hans fé-
laga Búdjonnís, og hér er sömuleiðis staddur guðfaðir minn, Níkon
Vasílitsj, sem er nú um stundir rauð hetja. Hann tók mig með í leið-
angur Pólitísku deildarinnar, þar sem við dreifum á vígstöðvarnar
bókum og blöðum — Moskvufréttum Miðstjórnar, Moskvuprövdu
og okkar kæra og mikunnarlausa blaði Rauða riddaranum, sem sér-
hver hermaður í víglínunni vill lesa og eftir það heggur hann í hetju-
móð niður aðalsfólin pólsku, og lifi ég mjög stórkostlega hér hjá
Níkon Vasílitsj.
Elskulega mamma Jevdokía Fjodorovna. Sendið mér allt sem
hægt er og efni leyfa. Eg bið yður að slátra geltinum flekkótta og
senda mér pakka á Pólitísku deildina hans félaga Búdjonnis, handa
Vasilí Kúrdjúkov. A hverjum sólarhring leggst ég til hvíldar svangur
og fatalaus alveg svo að mér er skítkalt. Skrifið mér um hann Stjopa
minn, hvort hann er lifandi eða ekki, lítið eftir honum og skrifið
fyrir hann — er hann víxlaður enn eða hættur því, og svo líka varð-
446