Tímarit Máls og menningar - 01.11.1987, Síða 14
Tímarit Máls og menningar
skal ég
rífa út sál mína
troða á henni
svo hún verði stór!
-og rétta ykkur hana alblóðuga, sem fána.
Majakovskí stóð svo sannarlega við þetta loforð. Hann orti einhvern
hreinræktaðasta áróðurskveðskap sem um getur, margt af honum birtist á
plakötum eða í dagblöðum. Þetta eru skammir um hvítliðagenerála og auð-
valdsforsprakka, liðhlaupa og landabruggara, eða hvatningarorð til þeirra
sem eiga að berjast við spekúlanta og kenna fólki að lesa og þvo sér. Hann
lofsyngur vatnsklósettið í nýjum verkamannabústöðum og rafvæðingar-
áætlun Leníns. Engin verkefni eru fyrir neðan virðingu skáldsins, og
kannski skiptir skáldið sem einstaklingur ekki lengur neinu máli. I
„150.000.000“ (1919) segir Majakovskí þetta kvæði sitt vera einskismanns-
verk, höfundur þess sé einna helst þær hundrað og fimmtíu miljónir sem
byggja land byltingarinnar og eru nú allar komnar af stað í líki mikils risa
sem veður Atlansála eins og ekkert væri og ætlar að sýna Wilson Banda-
ríkjaforseta og auðvaldinu yfirleitt í tvo heimana. Skáldið afsalar sér höf-
undarstolti, enda er hugmynd kvæðis hans sú ein:
að skína því sem á morgun kemur.
í kveðskap Majakovskís kemur fram feiknalega sterkur þjónustuvilji,
hann var reiðubúinn til þess að „grípa um kverkarnar á eigin söng“ eins og
hann komst að orði í einu síðasta kvæði sínu, „Fullum hálsi“ (1930) — og
staðhæfði reyndar um leið, að hann hefði aldrei séð eftir því. En eins og
kemur fram í merku kvæði frá árinu 1926, „Talað við skattheimtumann um
skáldskap", þá verður þjónustan beiskju blandin áður en langt um líður.
Eldmóður byltingaráranna dvínar, hvunndagsleiki hins nýja samfélags er
annar en ætlað var. Majakovskí yrkir þegar á líður æ meir um hina „innri“
óvini hugsjónar hans um fagurt Mannlíf og eins er víst að þeir sem ferðinni
ráða í byltingarríkinu láti sig skáldskap blátt áfram litlu varða. I ofan-
greindu kvæði er skattheimtumaðurinn gerður að tákni og ímynd lágkúru-
legs vanmats á framlagi skáldanna og talað fullum hálsi um stórfengleik
þess og mikilvægi:
Skáldskapur
er sama og vinnsla á radíum
Hvert unnið gramm
404
\